Sport

Spennandi viðureign á milli Luke Rockhold og Lyoto Machida í kvöld

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Það verður nóg um að vera þegar UFC on Fox 15 bardagakvöldið fer fram í kvöld í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Lyoto Machida og Luke Rockhold.

Luke Rockhold og Lyoto Machida eru tveir af skemmtilegustu bardagamönnunum í millivigt UFC og verður viðureign þeirra annað kvöld vafalaust æsispennandi.

Lyoto Machida er fyrrum léttþungavigtarmeistari UFC og barðist um millivigtartitilinn síðasta sumar. Þar beið hann í lægra haldi gegn núverandi meistara, Chris Weidman. Síðan þá hefur hann sigrað C.B. Dollaway og gæti fengið annan séns á beltinu með sigri hér í kvöld.

Luke Rockhold er fyrrum Strikeforce millivigtarmeistarinn og hefur klárað síðustu þrjá bardaga sína afar sannfærandi. Bardagaaðdáendur slefa yfir tilhugsuninni um titilbardaga milli Chris Weidman og Luke Rockhold. Með sigri í kvöld er líklegt að Rockhold fái næsta titilbardaga í millivigtinni.

Kapparnir eru báðir frábærir standandi en þó með gjörólíka stíla. Báðir standa í örvhentri stöðu (hægri löppin fram) og eru með eitruð spörk.

Luke Rockhold setur mikla pressu á andstæðinga sína og er með kröftugt vinstri spark. Það skiptir ekki máli hvort andstæðingurinn verji skrokkinn með olnboganum, Rockhold sparkar samt. Þegar Rockhold er settur undir pressu svarar hann með hægri krók sem hittir undarlega oft.

Lyoto Machida er á sama tíma með einstakan karate-stíl þar sem hann bakkar mikið og beitir hnitmiðuðum gagnárásum. Líkt og Rockhold er hann með virkilega kröftugt vinstri spark. Síðustu tveir sigrar Machida hafa komið eftir vinstri spark – háspark rotaði Mark Munoz og spark í skrokkinn kláraði C.B. Dollaway.

Þrátt fyrir að vera með ólíkan stíl standandi eiga þeir margt sameiginlegt. Báðir eru með góða fótavinnu, eru ekki góðir boxarar og eru mjög góðir í gólfinu. Hvorugur mun þó leitast við að taka bardagann í gólfið í kvöld.

Rockhold er bestur þegar hann stjórnar ferðinni en lendir í vandræðum sé hann settur undir pressu (líkt og gerðist gegn Vitor Belfort). Á sama tíma líður Machida ágætlega þegar andstæðingurinn pressar og Machida getur beitt gagnárásum. Það stefnir því allt í verulega spennandi viðureign milli þessara kappa í kvöld.

Bardaginn milli Machida og Rockhold er síðasti bardagi kvöldsins. Útsendingin hefst á miðnætti á Stöð 2 Sport í kvöld en eftirtaldir fjórir bardagar verða á dagskrá.

Millivigt: Lyoto Machida gegn Luke Rockhold

Millivigt: Ronaldo ‘Jacare’ Souza gegn Chris Camozzi

Fjaðurvigt: Cub Swanson gegn Max Holloway

Strávigt kvenna: Felice Herrig gegn Paige VanZant 

MMA

Tengdar fréttir

UFC 175: Lyoto Machida drekkur eigið þvag

Næstkomandi laugardagskvöld mun Lyoto Machida skora á millivigtarmeistara UFC, Chris Weidman, í aðalbardaga UFC 175. Machida er með sterkan bakgrunn í karate og drekkur eigið þvag af heilsufarsástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×