Matur

Spennandi matargerð frá suður-ameríku í þætti Völu Matt

visir.is/shutterstock
Suður-amerískir réttir sem slá í gegn Vala Matt heldur áfram að heimsækja sannkallaða sælkera í Reykjavík og í síðasta þætti sínum heimsótti hún suður-amerískt eldhús. Ceviche með löngu, bragðmikil chili sósa og nautakjötsréttur voru réttir kvöldsins að þessu sinni.

Ceviche

Einstaklega bragðmikill réttur sem tilvalið er að bera fram sem forrétt eða þá sem léttan aðalrétt. Fiskurinn eldast í límónusafanum og er þetta algjör veisla fyrir bragðlaukana.

1/2 kg langa

8 límónur

chili pipar, magn eftir smekk

ferskur coriander

2 rauðlaukar

salt og nýmalaður pipar

Aðferð:

Setjið löngu í skál ásamt rauðlauknum, kóríander og chilipipar. Hellið límónusafa yfir og kryddið til með salti og pipar. Kælið í ísskáp í um það bil klukkustund, hrærið upp í blöndunni á 20 mín.fresti. Berið réttinn fram með sætum kartöflum, salati og maís.

Papa a la Huancyna

Soðnar kartöflur

Harðsoðin egg

10 chili, fræhreinsuð

3 dl fetaostur

2 hvítlauksrif

salt og pipar

¼ L rjómi

8 tekex

olía, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið vel saman.
  2. Þessa sósu er hægt að bera fram með nánast öllum mat og er hún sérstaklega góð í pastarétti.
  3. Hellið sósunni yfir soðnar kartöflur og berið fram með salati og harðsoðnu eggi.
Lomo saltado

½ kg franskar kartöflur, frosnar

½ kg mjúkt nautakjöt

½ kg tómatar

½ rauðlaukur

1 pakki steinselja

2 chili, skornir langsum

2 msk soja sósa

1 tsk marin hvítlaukur

salt og pipar eftir smekk 

Aðferð:

  1. Eldið franskar kartöflur samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  2. Á meðan hitið þið olíu á pönnu, skerið kjötið og kryddið til með salti og pipar. Steikið kjötið þar til það er klárt og færið það á fat.
  3. Steikið því næst rauðlaukinn þar til hann er mjúkur í gegn, bætið chili, tómötum, hvítlauk og steinselju út á pönnuna. 
  4. Þegar tómatarnir eru mjúkir þá hellið þið soja sósunni yfir réttinn og bætið einnig frönsku kartöflunum út á pönnuna.
  5. Kryddið til með salti og pipar og berið strax fram. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×