Golf

Spennan magnast á opna breska | Veðrið setur strik í reikninginn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Regnhlífar sjást víða
Regnhlífar sjást víða vísir/getty
Allir kylfingar eru farnir af stað á þriðja degi opna breska meistaramótsins í golfi sem haldið er á Royal Liverpool golfvellinum á Englandi. Í fyrsta sinn í sögu mótsins var ræst út á tveimur teigum.

Ætla má að veðrið muni setja mikinn svip á leik kylfinga í dag en slæm veðurspá varð til þess að mótshaldarar ákváðu að láta kylfinga hefja leik á fyrsta og tíunda teig í dag en það hefur aldrei verið gert áður á þessu fornfræga móti.

Það rignir sem breytir vellinum nokkuð og þá sérstaklega flötunum sem taka mun betur við boltunum. Fyrir vikið geta kylfinga betur stöðvað boltann á flötunum og leikið ákveðnar á holustaðsetningarnar en öllu jöfnu þarf að hitta flatirnar framarlega á þessum strandvelli svo boltinn rúlli ekki yfir þær.

Rory McIlroy hefur nú lokið þremur fyrstu holunum og er hann enn í forystu en hún er nú aðeins tvö högg. McIlroy fékk skolla á fyrstu holunni og er alls á 11 undir pari en Dustin Johnson er einn undir pari á þremur fyrstu holunum og er nú á 9 undir. Fjórum höggum munaði á þeim í upphafi dagsins.

Rickie Fowler hefur farið mjög vel af stað í dag og er tvo undir eftir fjórar holur og er alls á 8 undir.

Tiger Woods hefur farið vel af stað en hann hóf leik á 10. holunni í morgun. Hann hefur leikið fjórar holur og er tvo undir pari og alls á parinu, einu höggi á undan meistara síðasta árs, Phil Mickelson sem hefur leikið 10 holur og er einn yfir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×