Fótbolti

Spánn vann fyrsta leikinn á Algarve-mótinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag. vísir/getty
Spánn bar siguroð af Japan, 1-2, í upphafsleiknum á Algave-mótinu.

Þessi lið eru með Íslandi í riðli á mótinu. Íslenska liðið mætir því norska klukkan 18:30 í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 59. mínútu kom Silvia Meseguer Spánverjum yfir. Olga García tvöfaldaði svo forskotið á 72. mínútu með sínu fyrsta landsliðsmarki.

Kumi Yokoyama minnkaði muninn í 1-2 þegar níu mínútur voru til leiksloka en nær komst Japan ekki. Lokatölur 1-2, Spáni í vil.

Ísland mætir Japan á föstudaginn og Spáni á mánudaginn.


Tengdar fréttir

Tækifærin verða í boði á Algarve – og engar afsakanir

Freyr Alexandersson stillir upp ungu byrjunarliði í fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á Algarve-mótinu á móti Noregi í dag. Dyr eru opnar í byrjunarliðið og nú er leikmanna að grípa gæsina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×