Fótbolti

Spánarmeistarnir höfðu betur gegn Ítalíumeisturunum | Sjáðu markið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Mandzukic.
Mario Mandzukic. vísir/getty
Spánarmeistarar Atletico Madrid höfðu betur gegn Juventus í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld, 1-0.

Arda Turan skoraði eina mark leiksins seint í leiknum en þetta var fyrsta tap Ítalíumeistara Juventus efitr að Massimiliano Allegri tók við stjórn liðsins.

Turan, sem er tyrkneskur landsliðsmaður, skoraði markið af stuttu færi en Atletico Madrid tapaði aldrei á heimavelli í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð og komst alla leið í úrslitaleikinn.

Arda Turan skoraði mark Atletico Madrid á 74. mínútu:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×