Körfubolti

Spáin fór aðeins í taugarnar á mér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Benedikt óttast ekki Stólana.
Benedikt óttast ekki Stólana. Vísir/Pjetur
Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í kvöld. Haukar taka á móti Keflavík á meðan Þór sækir Tindastól heim í Skagafirðinum.

„Ætli við leggjum ekki í hann um hádegisleytið. Þetta er keyrsla en skemmtileg á þessum tíma,“ segir Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, en hann var þá nýkominn úr klippingu. Strákurinn vill líta vel út í úrslitakeppninni.

„Okkur var spáð níunda sæti fyrir tímabilið. Þá kom ekki annað til greina en að komast í úrslitakeppnina. Ég tek þessa spá aldrei inn á mig en viðurkenni að það fór aðeins í taugarnar á mér að menn hefðu ekki trú á að við kæmumst í úrslitakeppnina. Við endum alltaf ofar en okkur er spáð og mér finnst stundum að mínir strákar megi fá meiri virðingu fyrir það sem þeir eru að gera,“ segir þjálfarinn.

Lið hans hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar og spilar því við liðið í öðru sæti. Benedikt hefur tvisvar stýrt liði sem hafnaði í öðru sæti en féll svo úr leik.

„Við þekkjum hvernig þetta er og það er allt hægt í þessum leik. Við höfum fulla trú á því að við getum slegið Stólana út. Við þurfum samt toppleik frá öllum til þess að vinna þá,“ segir Benedikt en nú þarf að vinna þrjá leiki til þess að komast áfram. Skiptar skoðanir eru á því hvort það hafi verið rétt að breyta á þann hátt.

„Það er auðvitað erfiðara fyrir liðin sem lenda neðar að koma á óvart en ég er mjög hrifinn af þessu. Með þessu fyrirkomulagi vinnur besta liðið. Ég vil hafa nóg af körfubolta þegar veislan byrjar loksins og húsin fara að fyllast.“

Benedikt er afar hjátrúarfullur maður þótt það hafi farið minnkandi með árunum. Ef lið hans vinnur leik þá mætir hann til leiks í sömu fötum í næsta leik. Á árum áður skipti hann þó stundum um föt í hálfleik. „Þetta er bara einhver geðveiki í manni,“ segir Benedikt léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×