Matur

Spaghetti Bolognese

Eva Laufey Kjaran skrifar
vísir/EVALAUFEY
Spaghetti Bolognese með einföldu hvítlauksbrauði

1 msk. ólífuolía

100 g beikon

1 laukur

2 stilkar sellerí

2 hvítlauksrif

600 g nautahakk

salt og nýmalaður pipar

1 nautakjötsteningur + 2 dl soðið vatn

1 krukka niðursoðnir tómatar

3 lárviðarlauf

1 msk tómatpúrra

fersk basilíka

Handfylli fersk steinselja

Aðferð:

1. Hitið smá ólífuolíu á pönnu.

2. Skerið niður beikon í litla bita og steikið þar til það er stökkt. Skerið sellerí, lauk og pressið hvítlauk. Bætið sellerí og lauknum út á pönnuna og steikið, bætið hvítlauknum saman við í lokin.

3. Bætið hakkinu út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar.

4. Þegar hakkið er tilbúið þá bætið þið 1 krukku af pastasósu út á pönnuna ásamt nautasoði.

5. Setjið þrjú lárviðarlauf saman við en takið þau upp úr réttinum áður en þið berið hann fram.

6. Saxið niður ferska steinselju og basilíku, sáldrið yfir hakkið.

7. Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.

8. Berið fram með Parmesan osti og nóg af honum.

Einfalt hvítlauksbrauð

1 baguette brauð

ólífuolía

2 hvítlauksrif

1 dós sýrður rjómi

1 tsk dijon sinnep

salt og nýmalaður pipar

rifinn Mozzarella ostur

nýrifinn Parmesan ostur

steinselja

Aðferð:

1. Blandið saman sýrðum rjóma, pressuðum hvítlauk, ólífuolíu, salti og pipar í skál.

2. Skerið baguette brauðið eftir endilöngu og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið hvítlauksblöndunni yfir brauðsneiðarnar og sáldrið rifnum osti yfir.

3. Bakið við 200°C í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Saxið niður ferska steinselja og dreifið yfir brauðið þegar það kemur út úr ofninum.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 


Tengdar fréttir

Veisla upp á franska vísu

Frönsk matargerð er með allra vinsælustu í heiminum enda ekki furða þar sem hver rétturinn á eftir öðrum er gómsætari. Eva Laufey eldaði sínar eftirlætis frönsku uppskriftir í þætti sínum Matargleði Evu sem sýndur er á fimmtudögum á Stöð 2.

Beikon- og piparostafylltur hamborgari

Það er fátt betra en heimagerður hamborgari með öllu því sem hugurinn girnist. Þegar sólin skín er upplagt að dusta rykið af grillinu og grilla ljúffengan mat sem kemur okkur öllum í sumarskap. Þessi beikon- og piparostafyllti hamborgari er algjörlega ómótstæðilegur, ég segi það og skrifa.

Grænmetislasagna úr Matargleði Evu

Í fyrsta þætti mínum eldaði ég hinn fullkomna grænmetisrétt, lasagna sem er stútfullt að góðgæti fyrir líkama og sál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×