Matur

Spaghetti alle vongole

Rikka skrifar
vísir/heida/Binni

Spaghetti með krækling er klassískur réttur sem á rætur sínar að rekja til Ítalíu. Fyrir þá sem hafa tök á gæti verið skemmtilegt að týna krækling með fjölskyldunni fyrr um daginn og elda svo réttinn um kvöldið, svo er um að gera að njóta þess með vönduðu hvítvínsglasi.

Spaghetti alle vongole


400 g spaghetti

1 msk smjör

1 msk ólífuolía

2 hvítlauksrif, pressuð

½ skalottlaukur, saxaður

1 tsk karrý

½ tsk chili flögur

1 sólþurrkaðir tómatar, grófsaxaðir

1 kg bláskel

250 ml hvítvín

50 ml rjómi

150 g ferskar grænar baunir (frosnar)

salt og nýmalaður pipar

3 msk fersk söxuð steinselja

Sjóðið pastað samkvæmt pakkningu. Á meðan pastað er að sjóða hitið þá smjör og ólífuolíu á stórri pönnu, gott er að nota wok pönnu. Steikið laukana þar til að þeir verða mjúkir í gegn, kryddið laukana með karrý og chili flögum. Setjið tómatana saman við og steikið áfram í 2 mínútur. Bætið bláskelinni út á pönnuna og hellið hvítvíninu og rjómanum saman við og látið sjóða niður í 2-3 mínútur. Sigtið vatnið frá pastanum og hellið því út á pönnuna ásamt baununum. Kryddið með salti og pipar og stráið steinselju yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×