Golf

Spá því að eiginkonu Mahan muni stela athyglinni á Ryder Cup

Kandi Mahan í vinnunni hjá Kúrekunum.
Kandi Mahan í vinnunni hjá Kúrekunum. vísir/getty
Kylfingarnir á Ryder Cup verða ekki einir í sviðljósinu um helgina. Eiginkonur og unnustur kylfinga fá einnig drjúgan skerf af sviðsljósinu eins og venjulega.

Aðalstjarnan í eiginkonuliði Bandaríkjamanna er Kandi Mahan, eiginkona Hunter Mahan. Hún var áður klappstýra hjá NFL-liðinu Dallas Cowboys. Hún hefur þegar fengið mikla fjölmiðlaathygli og verður henni líklega fylgt fast eftir á mótinu.

Hjá Evrópuliðinu verður líklega mikið fylgst með Kate Rose, eiginkonu Justin Rose, en hún er fyrrverandi afrekskona í fimleikum. Emma Lofgren, eiginkona Henrik Stenson, getur eflaust gefið sínum manni góð ráð enda var hún frambærilegur kylfingur á sínum tíma og spilaði með háskólaliði í Bandaríkjunum.

Fyrrum eiginkona Tiger Woods, Elin Nordegren, fékk ávallt mikla athygli er hún fylgdi Tiger á sínum tíma en Kandi Mahan mun líklega stela athyglinni að þessu sinni.

Konurnar munu venja samkvæmt dreifa sér um völlinn alla keppnisdagana og öskra sína menn duglega áfram.

Eiginkonur kylfinganna í liði Evrópu.vísir/getty

Tengdar fréttir

Fowler rakar „USA“ í hárið

Bandaríski kylfingurinn Rickie Fowler mætti ásamt liðsfélögum sínum í bandaríska liðinu til Skotlands í dag þar sem Ryder-bikarinn hefst formlega á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×