Körfubolti

Spá Þórssigri í næsta leik: Þetta fer í fimm leiki, alveg klárt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Grindavík tók forystuna í einvíginu við Þór Þ. með sigri í Röstinni í gær, 100-92.



Næsti leikur liðanna fer fram í Þorlákshöfn á morgun og eiga sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds von á Þórssigri þar.

„Ég hef fulla trú á því að Þór taki hressilega á móti Grindvíkingum í næsta leik og vinni hann. Ég átti von á því að þetta færi í oddaleik og stend við það,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson í þætti gærkvöldsins.

Fannar Ólafsson segir að spilamennska Grindavíkur í einvíginu hafi ekki komið sér á óvart.

„Nei, í raun og veru ekki. Þeir hafa gert þetta áður. Fyrst Lalli [Þorleifur Ólafsson] er heill og [Lewis] Clinch að spila sæmilega kemur þetta mér ekki á óvart,“ sagði Fannar.

„Þetta fer í fimm leiki, alveg klárt. Ég held að Þór vinni næsta leik.“

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×