Innlent

Spá stormi og rifja upp skaðlegt óveður fyrir sléttum 23 árum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Búast má við stormi á miðum.
Búast má við stormi á miðum. Vísir/Anton
Afar hvasst er á Suður- og Suðausturlandi í morgunsárið og reiknað er með stormi eftir hádegi. Áfram verður vindasamt á morgun og þá sérstaklega á Austfjörðum þar sem von er á stormi. Þetta kemur fram í textaspám Veðurstofu Íslands.

Þá er búist við stormi áá Suðvesturmiðum, Faxaflóamiðum, Breiðafjarðarmiðum, Vestfjarðamiðum, Norðvesturmiðum, Norðausturmiðum, Austurmiðum, Austfjarðamiðum, Suðausturmiðum, Vesturdjúpi, Grænlandssundi, Norðurdjúpi, Austurdjúpi, Færeyjardjúpi, Suðausturdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi 

Í athugasemdum veðurfræðings segir að ganga muni á meðsuðvestahvassviðri og slydduéljum eða skúrum í dag, jafn vel stormi syðst. Snýst síðan í hvassa norðvestanátt með kvöldinu og er spáð stormi á Austfjörðum á morgun. Næstu daga verður umhleypingasamt í meira lagi og fáum við að upplifa ósvikið vetrarverður, með tilheyrandi kuldatíð, hvassviðri og fönn, sem þó getur ekki talist óalgengt á þessum árstíma. 

Heilu þökin fuku

Veðurfræðingur rifjar upp að 23. nóvember árið 1992, eða fyrir sléttum 23 árum, urðu miklir skaðar í óveðri. Þakplötur og jafn vel heilu þökin fuku af húsum í veðurofsanum, raflínur rofnuðu, bílar, bátar og annað lauslegt skemmdist einnig, þó enginn hafi orðið fyrir heilsutjóni né týnt lífi, sem betur fór.

Veðurspá dagsins

Suðvestan 15-23 m/s og skúrir eða slydduél, hvassast NV-lands, en hægari og léttskýjað fyrir austan. Hiti yfirleitt 1 til 6 stig. Suðvestan og vestan 15-23 og víða skúrir og síðar él í dag og kólnar, hvassast syðst.

Norðvestan 10-18 og éljagangur í kvöld, hvassast NA-lands, en rofar heldur til syðra. Norðvestan 13-25 á morgun, hvassast á Austfjörðum, en mun hægari V-til. Él víða um land, en bjartviðri syðra og hiti kringum frostmark.

Búast má við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum í dag og á sunnanverðum Austfjörðum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×