Viðskipti innlent

Spá hraðri hækkun vaxta Seðlabankans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ingólfur Bender er forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka.
Ingólfur Bender er forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka.
Hagur heimilanna mun halda áfram að vænkast á næstu misserum með auknum kaupmætti, minna atvinnuleysi og hækkun eignaverðs. Einkaneysla mun vaxa um 3,8% að jafnaði á næstu þremur árum og fjárfestingar heimilanna í íbúðarhúsnæði munu vaxa næstu þrjú árin eða um 18,5% í ár, 16,3% á næsta ári og 11% á árinu 2017.

Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði hóflegur á næstu tveimur árum. Gert er ráð fyrir að hagsvöxtur verði 4% á þessu ári, 3,7% á árinu 2016 og 2,4% árið 2017. Þjóðhagsspáin gerir ráð fyrir að daga muni úr hækkunum á húsnæðisverði á tímabilinu. Gert er ráð fyrir 7,0% raunverðshækkun íbúðarhúsnæðis á þessu ári, 3,4% á næsta ári og 1,9% árið 2017.

Greining Íslandsbanka segir að efnahagsumhverfi fyrirtækja hafi batnað á marga mælikvarða undanfarin ár, meðal annars með aukinni innlendri sem erlendri eftirspurn og bættum viðskiptakjörum. Greining Íslandsbanka reiknar með því að umhverfi þeirra muni halda áfram að styrkjast á spátímabilinu. Er því spáð að fjárfestingar atvinnuveganna muni aukast á næstunni og er gert ráð fyrir 16,9% vexti í ár, 18,8 á næsta ári en einungis 1,7 vexti árið 2017.

Gengi krónunnar verði stöðugt

Í spánni er gert ráð fyrir góðum vexti í útflutningi á vöru og þjónustu á tímabilinu, meðal annars vegna vaxtar í ferðaþjónustu og útflutningi sjávarafurða. Spáir Greining 4,7% vexti útflutnings í ár, 3,4% á næsta ári og 3,5% árið 2017. Þrátt fyrir góðan útflutningsvöxt er gert ráð fyrir hraðari vexti innflutnings á tímabilinu og verður framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar neikvætt á tímabilinu. Samkvæmt spánni minnkar afgangur vöru- og þjónustuviðskipta á spátímabilinu.

Gengi krónunnar verður stöðugt á spátímabilinu en flökt gengisins mun aukast samhliða þeim skrefum sem hugsanlega verða tekin á tímabilinu í afnámi fjármagnshafta. Spáin gerir ráð fyrir að raungengi krónunnar muni hækka á tímabilinu vegna mikillar innlendrar kostnaðarverðhækkunar og aukinnar innlendrar verðbólgu.

Greining Íslandsbanka segir að sú hagfellda verðbólguþróun sem hefur hér undanfarið muni taka enda á næstunni og verðbólga færast í aukanna. Spáð er að verðbólga verði að jafnaði 1,9% á yfirstandandi ári, 3,6% á árinu 2016 og 3,7% á árinu 2017.

Greining Íslandsbanka spáir því að að peningastefnunefnd Seðlabankans bregðist við versnandi verðbólguhorfum, miklum launahækkunum og aukinni spennu í hagkerfinu með hækkun stýrivaxta bankans um 1 prósentustig fyrir lok þessa árs, um annað prósentustig á næsta ári og um 0,5 prósentur á árinu 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×