Viðskipti erlent

Spá hnignun í sölu iPhone

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sala á iPhone 6S hefur ekki verið í samræmi við væntingar.
Sala á iPhone 6S hefur ekki verið í samræmi við væntingar. Vísir/Getty
Apple kynnti afkomu fjórða ársfjórðungs síðasta árs í gærkvöldi og þá var ljóst að söluaukning iPhone milli ára var mun minni en árin áður. Nú spá sérfræðingar að þetta sé byrjunin á hnignun í sölu iPhone á árinu 2016.

Apple átti stórkostlegt ár eftir að hafa kynnt síma með stærri skjá, iPhone 6, auk stærri útgáfu af þeim síma, iPhone 6 Plus, í september árið 2014. En talið er að of lítil þróun hafi orðið milli iPhone 6 og 6S, sem kynntur var í september 2015, því séu neytendur annaðhvort að kaupa gamla iPhone 6 síma eða bíða eftir tækninýjungum hjá iPhone 7, sem er væntanlegur í september 2016.

Reuters greinir frá því að spáð sé að sala á iPhone muni dragast saman á fyrsta fjórðungi þessa árs sem yrði fyrsti samdráttur milli fjórðunga síðan fyrsti iPhone síminn var kynntur árið 2007. Sérfræðingar spá að 54,6 milljónir síma muni seljast á fyrsta fjórðungi þessa árs, samanborið við 61,2 milljónir síma á sama fjórðungi ársins 2015, sem var fjörutíu prósenta aukning milli ára.

Hlutabréf í Apple hafa lækkað um tíu prósent síðan í byrjun október. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×