Íslenski boltinn

Spá Fréttablaðsins og Vísis: ÍBV hafnar í 11. sæti

Eyjamenn fagna marki gegn Víkingi í fyrra sem fór langt með að halda þeim uppi.
Eyjamenn fagna marki gegn Víkingi í fyrra sem fór langt með að halda þeim uppi. vísir/andri marinó
Fréttablaðið og Vísir telur niður í Pepsi-deild karla í knattspyrnu með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 3. maí og þar á Stjarnan titil að verja eftir að hafa orðið meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Fréttablaðið og Vísir spáir ÍBV ellefta sæti deildarinnar og þar með falli í 1. deild. Liðið hefur verið samfleytt í efstu deild síðan 2009 eftir fall árið 2006. ÍBV var ekki langt frá því að falla í fyrra en liðið endaði í tíunda sæti.

ÍBV hefur fengið nýjan þjálfara, en Jóhannes Harðarson, Skagamaður, er tekinn við stjórn liðsins. Jóhannes spilaði lengi sem atvinnumaður í Hollandi og Noregi og tók við liði Flekkeröy eftir að leikmannaferlinum lauk. Hann er reyndur þjálfari þó hann hafi ekki stýrt liði í Pepsi-deildinni áður.

LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:
graf/garðar
EINKUNNASPJALDIÐ

Vörnin: 1 stjarna (af 5)

Sóknin: 3 stjörnur

Þjálfarinn: 2 stjörnur

Breiddin: 1 stjarna

Liðsstyrkurinn: 1 stjarna

Hefðin: 3 stjörnur

Abel Dhaira, Jonathan Glenn og Gunnar Þorsteinssonvísir/stefán/andri marinó
ÞRÍR SEM ÍBV TREYSTIR Á

Abel Dhaira: Það má margt segja um Abel Dhaira en hann hefur sýnt að hann getur verið frábær markvörður. Hann fékk ekki á sig nema 21 mark í 22 leikjum sumarið 2012 en hann var þó vissulega með frábæra vörn fyrir framan sig. Með nýja varnarlínu fyrir framan sig núna verður Abel að rífa sig í gang og sýna sömu tilþrif og hann gerði árið 2012.

Jonathan Glenn: Sýndi í fyrra að hann er úrvals markaskorari sem gerir hlutina einfalt. Hann hleypur á eftir öllum sendingu í gegnum vörnina og yfir hana og klárar færin sín ágætlega. Hugrakkur og setur hausinn í alla bolta ef hann getur skorað. Það er meira og minna honum að þakka að ÍBV er í efstu deild og ábyrgðin er ekki minni núna.

Gunnar Þorsteinsson: Þar sem varnarlínan er ný þarf Gunnar að spila eins og hann gerði þegar hann kom til ÍBV árið 2013. Gunnar sýndi ekki sínar réttu hliðar í fyrra en þetta er leikmaður sem berst og getur varið vörnina af krafti sé hann í standi. Hann þarf líka að halda stemningunni í gangi í klefanum hjá Eyjamönnum því sumarið gæti orðið erfitt.

Aron Bjarnason er kominn í ÍBV.vísir/skjáskot
Nýstirnið: Aron Bjarnason

Einn af þeim leikmönnum sem náðu aðeins að skína í slöku liði Fram í fyrra. Tekknískur og skemmtilegur kantmaður sem getur tekið menn á og skorað nokkur mörk.

Aron fær væntanlega tækifæri til að byrja alla leiki núna og sama hvernig Eyjaliðinu gengur verður þetta gullið tækifæri fyrir hann að sýna að hann geti tekið á sig aukna ábyrgð og lagt bæði upp mörk og skorað þau sjálfur.

Brynjar Gauti Guðjónsson fór í Stjörnuna.vísir/vilhelm
MARKAÐURINN

Komnir:

Avni Pepa frá Albaníu

Mees Siers frá SönderjyskE

Tom Even Skogsrud frá Noregi

Aron Bjarnason frá Fram

Benedikt Októ Bjarnason frá Fram

 

Farnir:

Þórarinn Ingi Valdimarsson í FH

Brynjar Gauti Guðjónsson í Stjörnuna

Arnar Bragi Bergsson í GAIS

Arnór Eyvar Ólafsson í Fjölni

Atli Fannar Jónsson í Víking R.

Jökull Elísabetarson í KV

Dean Martin

Isak Nylen

Eyjamenn misstu þrjá af fjórum úr varnarlínunni sem hefur verið ein sú sterkasta í deildinni undanfarin ár. Eiður Aron kemur ekki aftur, Brynjar Gauti fór í Stjörnuna og Arnór Eyvar, kannski vanmetnasti varnarmaður deildarinnar undanfarin ár, spilar nú með Fjölni.

Þess utan fór Þórarinn Ingi Valdimarsson í FH þannig missirinn er mikill. Allir stóru bitarnir í liðinu nema Jonathan Glenn eru farnir. Þetta er augljóslega ekki gott.

Á móti hefur ÍBV fengið þrjá leikmenn úr Framliði sem féll og þrjá erlenda leikmenn sem eru alltaf spurningamerki. Norðmennirnir tveir eru varnarmenn en Hollendingurinn á að vera ásinn í erminni á miðjunni. En hann hefur verið meiddur.

Það er nokkuð augljóst að ÍBV fór illa út úr félagaskiptamarkaðnum í sumar.

HVAÐ SEGIR SÉRFRÆÐINGURINN?

Hjörtur Hjartarson kemur nýr inn í Pepsi-mörkin í ár, en hann hefur áður stýrt íslensku mörkunum á RÚV og verið sérfræðingur í Messunni á Stöð 2 Sport og Meistaramörkunum. Hjörtur spilaði með Skallagrími, Völsungi, ÍA, Þrótti, Selfossi og Víkingi á 19 ára löngum ferli. Hann varð markakóngur í úrvalsdeildinni árið 2001 þegar hann fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með ÍA.

 

Jóhannes Harðarson er tekinn við ÍBV.mynd/eyjafréttir
STYRKLEIKAR LIÐSINS:

Eins og Eyjamenn kynntust í fyrra getur verið óborganlegt að vera með framherja sem skorar yfir tíu mörk. Jonathan Glenn fór ekki neitt og þarf að draga vagninn fyrir ÍBV. Heimavöllurinn er vanalega sterkur og karakterinn í liðinu. Þarna eru líka strákar eins og Aron Bjarnason og Bjarni Gunnarsson sem eru vafalítið hungraðir í að sanna sig almennilega.

VEIKLEIKAR LIÐSINS:

Þar sem Matt Garner er meiddur er enginn eftir úr fjögurra manna varnarlínunni sem hefur verið aðalsmerki ÍBV. Allir bestu leikmenn liðsins eru farnir og breiddin er mjög lítil. Fyrir utan Glenn er erfitt að sjá hverjir ætla að bæta við þeim mörkum sem þarf að skora til að halda liðinu í efstu deild.

Jonathan Glenn verður að skora mörkin.vísir/andri marinó
BINNI BJARTSÝNI SEGIR:

Þetta verður erfitt en ÍBV fellur ekki. Við náðum í tíu stig á útivelli í fyrra á móti tólf á heimavelli. Við höfum verið að bæta útivallarárangurinn þannig ef við verjum bara Hásteinsvöllinn söllum við inn nóg af stigum til að vera áfram á meðal þeirra bestu. Við erum með framherja sem skorar tíu plús og svo verður Aron Bjarnason einn af betri ungu leikmönnum deildarinnar. Við erum að búa til nýtt lið og höfum misst mikið en ef við verjum bara Hásteinsvöllinn og stöndum saman þá verðum við áfram á meðal þeirra bestu.   

SIGGI SVARTSÝNI SEGIR:

Þetta verður okkar síðasta ár í úrvalsdeildinni í bili. Við höfum þokast neðar í töflunni á ári hverju síðan Heimir fór að stýra þessu landsliði okkar. Vorum heppnir að halda sæti okkar í fyrra og nú förum við niður. Varnarlínan er gufuð upp og þeir sem komu í staðinn ekki á pari við þá sem fóru.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×