Íslenski boltinn

Spá Fréttablaðsins og Vísis: Fylkir hafnar í 5. sæti

Fylkismenn misstu af Evrópusæti í lokaumferðinni í fyrra eftir fínan endasprett.
Fylkismenn misstu af Evrópusæti í lokaumferðinni í fyrra eftir fínan endasprett. vísir/daníel
Fréttablaðið og Vísir telur niður í Pepsi-deild karla í knattspyrnu með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 3. maí og þar á Stjarnan titil að verja eftir að verða meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Fréttablaðið og Vísir spáir Fylki fimmta sætinu sem er sæti ofar en liðið endaði í fyrra. Fylkismenn gátu komist í Evrópu með sigri á föllnu liði Fram á lokadegi en klúðruðu því á ævintýralegan hátt. Fylkir hefur ekki komist í Evrópu síðan 2009. Fylkir hefur aldrei orðið Íslandsmeistari en á tvo bikarmeistaratitla, síðast vann það bikarinn 2001.

Ásmundur Arnarsson þjálfar Fylki fjórða árið í röð, en undir hans stjórn hefur liðið tvisvar sinnum náð sjöunda sæti og svo sjötta sæti í fyrra. Ásmundur þjálfaði áður Fjölni, en hann gerði góða hluti í Grafarvoginum og kom liðinu í efstu deild í fyrsta skipti.

LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:
graf/garðar
EINKUNNASPJALDIÐ

Vörnin: 3 stjörnur (af 5)

Sóknin: 3 stjörnur

Þjálfarinn: 3 stjörnur

Breiddin: 2 stjörnur

Liðsstyrkurinn: 3 stjörnur

Hefðin: 3 stjörnur

Albert Brynjar Ingason, Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Ingimundur Níels Óskarsson.vísir/ernir/valli/vilhelm
ÞRÍR SEM FYLKIR TREYSTIR Á

Albert Brynjar Ingason: Ef Albert fær að spila þá skorar hann mörk. Hann skoraði 26 mörk í 56 leikjum fyrir Fylki 2009-2011 áður en hann fór í FH þar sem samkeppnin var meiri og leikjunum fækkaði. Hann skoraði ekkert mark í fimm leikjum fyrir FH á síðustu leiktíð en setti svo sex í tíu leikjum eftir að hann sneri aftur í Árbæinn. Albert Brynjar virkar best í Fylki með félaga sína Andrés Már og Ingimund Níels. Hann er markaskorarinn sem Fylkir treystir á.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson: Börkurinn er alltaf prímus mótorinn á miðjunni hjá Fylki. Nú spilar hann með Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem hefur átt mjög slök ár eftir að hann sneri aftur heim. Ásgeir verður áfram lykilmaðurinn á miðjunni, sá sem sér um að hlaupa, djöflast og verja vörnina. Hann verður að standa undir nafni í sumar eins og hann gerir nánast alltaf.

Ingimundur Níels Óskarsson: Önnur endurkoma í Árbæinn sem Fylkismenn ættu að fagna. Það fór minna fyrir Ingimundi í FH en gerði hjá Fylki. Þarna er samt á ferð frábær kantmaður sem getur tekið menn á, gefið fyrir og skilar mörkum. Síðast þegar hann spilaði með Fylki skilaði hann tíu mörkum í 21 leik af kantinum. Það er ekki að ástæðulausu að Fylkismenn fengu samkeppni frá fjórum liðum úr deildinni um hann.

Ásgeir Eyþórsson getur slegið í gegn.vísir/ernir
Nýstirnið: Ásgeir Eyþórsson

Miðvörðurinn ungi hefur spilað fyrir Fylki síðan 2011 en varð fyrst fastamaður í vörninni í fyrra þegar hann spilaði 21 leik og stóð sig mjög vel.

Ásgeir hefur alla burði til að springa út í sumar og verða einn af betri varnarmönnum deildarinnar. Hann er stór, sterkur og les leikinn vel. Fylkismenn voru skynsamir að semja aftur við hann seint síðasta sumar því það voru nokkur lið í deildinni sem ætluðu að reyna að stela honum úr Árbænum.

Kristján Valdimarsson lagði skóna á hilluna.vísir/ernir
MARKAÐURINN

Komnir:

Ásgeir Börkur Ásgeirsson frá GAIS

Ingimundur Níels Óskarsson frá FH

Jóhannes Karl Guðjónsson frá Fram

Reynir Haraldsson frá ÍR

Tonci Radinovkovic  frá Króatíu

Farnir:

Björn Hákon Sveinsson í Völsung

Finnur Ólafsson í Víking

Gunnar Örn Jónsson hættur

Kristján Valdimarsson hættur

Viktor Örn Guðmundsson í Fjarðabyggð

Hjá Fylkismönnum snýst allt um heimkomur Ásgeirs Barkar og Ingimundar Níels. Þarna fara einn besti varnarsinnaði miðjumaður deildarinnar og einn af betri sóknarmönnunum. Þvílíkur fengur fyrir Fylki. Liðinu vantaði meiri kraft í sóknarleikinn og nú samanstendur hann af Andrési Má, Ingimundi og Alberti Brynjari.

Fylkir fékk sér króatískan miðvörð sem á að vera sterkur, en hann heitir Tonci Radinovkovic. Standi hann undir væntingum er breiddin orðin meiri í varnarleiknum því Kristján Hauksson, læknir með meiru, er byrjaður aftur og æft og spilað með Fylki í allan vetur.

Missirinn er ekki mikill. Gunnar Örn, Kristján og Viktor Örn spiluðu allir undir níu leiki í fyrra og voru í aukahlutverkum og einnig meiddir. Fylkismenn hafa því styrkt sig frekar en að veikjast og gerður í heildina mjög flotta hluti á leikmannamarkaðnum með að fá tvo ása.

HVAÐ SEGIR SÉRFRÆÐINGURINN?

Óskar Hrafn Þorvaldsson er íþróttastjóri 365 og einn af sérfræðingum Vísis í spánni fyrir Pepsi-deildina. Hann spilaði 71 leik fyrir KR í efstu deild og varð bikarmeistari með liðinu árið 1994. Hann lék einnig með Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni og á að baki þrjá landsleiki fyrir A-landslið Íslands auk 30 leikja fyrir yngri landsliðin.

Ásmundur Arnarson er þjálfari Fylkis.vísir/daníel
STYRKLEIKAR LIÐSINS:

Fjórmenningarnir sem voru allt í öllu síðast þegar liðið komst í Evrópukeppni 2009 (3. sæti með 43 stig); Ásgeir Börkur, Ingimundur Níels, Andrés Már og Albert Brynjar, eru allir komnir aftur. Þetta er góður kjarni af gæðaleikmönnum sem allir eru uppaldir. Stemningin virðist mikil í hópnum, en liðið fór langt á gæðum og gleði sumarið 2009 þegar það tryggði sér Evrópusæti með stæl.

VEIKLEIKAR LIÐSINS:

Þó Fylkir sé með frekar sterkt byrjunarlið er breiddin ekki mikil og munurinn á byrjunarliðsmönnum og þeim næstu inn frekar mikill. Varnarleikurinn er líka stórt spurningamerki og sér í lagi markvarslan þar sem Ólafur Íshólm er líklega búinn að taka stöðuna af Bjarna Þórði Halldórssyni.

Bjarni Þórður Halldórsson er líklega búinn að missa stöðu aðalmarkvarðar liðsins.vísir/daníel
BINNI BJARTSÝNI SEGIR:

Árið er 2009 – aftur. Það eru bara bestu liðin sem eru með fjóra ása eða fleiri á hendi og við erum eitt af þeim. Man enginn hvernig þetta léttleikandi lið Óla Þórðar spólaði sér í 43 stig? Þá voru þessir strákar bara guttar en núna á besta fótboltaaldri, reynslunni ríkari. Ég er byrjaður að pakka niður í Evrópuferðatöskur.

SIGGI SVARTSÝNI SEGIR:

Sóknarmennirnir eru fínir, en Binni, þú ert að gleyma við vorum með Val Fannar, Óla Stígs og Kristján Valdimarsson 2009. Varnarleikurinn var mun sterkari og Ólafur Þór Gunnarsson kom í markið um mitt mót. Það er gaman að fá alla strákana heim en varnarleikurinn er ekki nógu sterkur og markvarslan vandræði. Við verðum í sama miðjumoðinu og undanfarin ár.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×