Enski boltinn

Southampton skellti Englandsmeisturunum | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Southampton vann Englandsmesitarar Leicester City 3-0 á heimavelli í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

James Ward-Prowse kom Southampton yfir á 26. mínútu með góðu skoti. Jay Rodriguez bætti öðru marki við sex mínútum fyrir hálfleik og var staðan í hálfleik 2-0.

Southampton var mun betri aðilinn í leiknum en þriðja markið kom þó ekki fyrr en fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Dusan Tadic skoraði það úr vítaspyrnu.

Southampton lyfti sér upp í 11. sæti með sigrinum. Liðið er með 27 stig en Leicester er með 21 stig í 15. sæti. Fimm stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×