Enski boltinn

Southampton rúllaði yfir Norwich

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pelle fagnar marki sínu í dag.
Pelle fagnar marki sínu í dag. vísir/getty
Southampton vann góðan sigur á Norwich City, 3-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Graziano Pelle gerði fyrsta mark leiksins á 45. mínútu og það var síðan Dusan Tadic sem bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleiknum.

Sjötta rauða spjald helgarinnar leit dagsins ljós í leiknum í dag þegar Steven Whittaker fauk útaf í fyrri hálfleiknum. Ótrúlegt alveg hreint að sex leikmenn hafi þurft að yfirgefa völlinn um helgina í ensku úrvalsdeildinni.

Southampton er í tíunda sætinu með fimm stig en Norwich hefur einu stigi minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×