Enski boltinn

Southampton og Inter íhuga leikmannaskipti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Daniel Osvaldo fann sig ekki hjá Southampton.
Daniel Osvaldo fann sig ekki hjá Southampton. Vísir/Getty
Samkvæmt ítalska dagblaðinu Gazzetta dello Sport munu Southampton og Internazionale skipta á framherjanum Daniel Osvaldo og miðjumanninum Sapher Taider.

Osvaldo var keyptur til Dýrlinganna fyrir um 13 milljónir punda fyrir síðasta tímabil, en var ekki í náðinni hjá Mauricio Pochettino og var lánaður til Juventus seinni hluta tímabilsins.

Alsíringurinn Taïder gekk til liðs við Inter í fyrrasumar. Hann lék 25 leiki og skoraði eitt mark á síðasta tímabili.


Tengdar fréttir

Osvaldo blóðgaði liðsfélaga sinn á æfingu

Ítalinn Pablo Osvaldo var í dag settur í tveggja vikna agabann hjá félagi sínu Southampton í ensku úrvalsdeildinni en BBC hefur nú heimildir fyrir því að Osvaldo hafi slegist við liðsfélaga sinn á æfingu liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×