Enski boltinn

Southampton kláraði Arsenal í fyrri hálfleik | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ryan Bertrand horfir til himins eftir að hafa skorað annað mark Southampton.
Ryan Bertrand horfir til himins eftir að hafa skorað annað mark Southampton. vísir/getty
Arsenal er úr leik í enska deildabikarnum eftir 0-2 tap á heimavelli fyrir Southampton í kvöld.

Dýrlingarnir eru því komnir áfram í undanúrslit deildabikarsins ásamt Manchester United, Liverpool og Hull City.

Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Jordie Clasie skoraði það fyrra á 13. mínútu með föstu skoti frá vítateigslínunni. Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið.

Vinstri bakvörðurinn Ryan Bertrand skoraði svo seinna mark Southampton á 38. mínútu eftir sendingu frá Sofiane Boufal og þar við sat. Lokatölur 0-2, Southampton í vil.

Arsenal 0-1 Southampton Arsenal 0-2 Southampton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×