Innlent

Sóttu slasaðan sjómann

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björgunarmenn fóru á staðinn á tveimur hraðskreiðum bátum.
Björgunarmenn fóru á staðinn á tveimur hraðskreiðum bátum. Vísir
Björgunarsveitin Þorbjörn var kölluð út síðdegis í dag þegar tilkynning barst um slasaðan sjómann um borð í fiskiskipi rétt utan Grindavíkur.

Björgunarmenn fóru á staðinn á tveimur hraðskreiðum bátum og fluttu manninn til hafnar í Grindavík eftir að hafa hlúð að honum. Hann var svo fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en ekki fást upplýsingar um meiðsli hans að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×