Innlent

Sóttu slasaðan ferðamann við Skrokköldu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Sprengisandi.
Frá Sprengisandi. vísir/vilhelm
Flugbjörgunarsveitin á Hellu sótti í morgun slasaðan ferðamann að Skrokköldu á Sprengisandi.

Maðurinn óskaði eftir aðstoð. Hann kvaðst hafa meiðst á fæti fyrir tveimur dögum og væri nú vart gangfær.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu var maðurinn kominn í bíl björgunarsveitarinnar rétt fyrir klukkan 10 í morgun sem flytur hann nú til byggða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×