Innlent

SOS Barnaþorp senda neyðaraðstoð í kjölfar skjálfta

Atli Ísleifsson skrifar
Mikil eyðilegging blasir við íbúum Nepals.
Mikil eyðilegging blasir við íbúum Nepals. Vísir/AFP
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda að lágmarki tvær milljónir króna til neyðaraðstoðar í Nepal í kjölfar jarðskjálfta þar upp á 7,9 í morgun.

Í tilkynningu frá SOS Barnaþorpum segir að starfsfólk SOS í Nepal sé nú að undirbúa umfangsmikla neyðaraðstoð, meðal annars að taka við og liðsinna börnum sem misst hafa foreldra sína í skjálftanum eða orðið viðskila við sína nánustu. „Unnið verður að því í samstarfi við yfirvöld og önnur samtök að sameina fjölskyldur og finna hentugustu úrræðin fyrir þau börn sem orðið hafa munaðarlaus.

Þá verða opnuð barnvæn svæði þar sem börn geta komið og leikið sér, fengið áfallahjálp, stundað nám og fleira fjarri þeim áhyggjum, sorg og ringulreið sem geta einkennt daglegt líf í kjölfar hamfara.

Leita samtökin nú til almennings eftir stuðningi við neyðaraðstoðina. Hægt er að millifæra framlag á reikning 334-26-52075, kt.500289-2529 með skýringunni: Nepal.

Þá er hægt að hringja í síma 907 1001 (1.000 krónur); og í síma 907 1002 (2.000 krónur).

Níu SOS Barnaþorp eru í Nepal og hafa samtökin sinnt þar barnahjálparstarfi í yfir 40 ár. Þá reka SOS einn leikskóla í landinu, sjö grunnskóla, þrjá verknámsskóla og eina heilsugæslustöð. Auk þess hjálpa samtökin víðs vegar um landið þúsundum fátækra barnafjölskyldna til fjárhagslegs sjálfstæðis með Fjölskyldueflingu SOS. Sú aðstoð mun að líkindum aukast nú í kjölfar skjálftans.

Samkvæmt fréttum af vettvangi eru öll börn í barnaþorpum óhult og það sama á við um allt starfsfólk samtakanna í Nepal.

Um 160 Íslendingar eiga styrktarbörn í barnaþorpum í Nepal og  fylgjast með uppvexti þeirra. Námu framlög þeirra til framfærslu barnanna 7,4 milljónum króna á síðasta ári,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×