Viðskipti innlent

Sorgmædd, gátu ekki varist blekkingum og undrast sinnuleysi erlenda ráðgjafans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Geir Haarde og Valgerður Sverrisdóttir undirrituðu kaupsamninginn fyrir hönd ríkisins.
Geir Haarde og Valgerður Sverrisdóttir undirrituðu kaupsamninginn fyrir hönd ríkisins. vísir/vilhelm
„Þessum vel undirbúnu blekkingum gátu stjórnvöld ekki varist enda höfðu þau ekki ástæðu til að gruna kaupendur um þess háttar athæfi,“ segir Geir Haarde, sem var fjármálaráðherra þegar Búnaðarbankinn var seldur árið 2003 og tók þátt í að staðfesta kaupsamninginn.

„Það er dapurlegra en orð fá lýst að nú, 14 árum síðar, skuli leitt í ljós að stjórnvöld. sem seldu þessa eign almennings í góðri trú og í samræmi við lagaheimildir, hafi verið blekkt varðandi þennan þátt málsins,“ segir Geir í skriflegu svari til Fréttablaðsins þegar hann var inntur eftir viðbrögðum.

Valgerður Sverrisdóttur sem einnig sat í ríkisstjórninni, sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segist dolfallin yfir niðurstöðunni. „Já, ég er sorgmædd,“ segir Valgerður Sverrisdóttir.

Undirskriftirnar á samningnum á sölunni á Búnaðarbankanum.
„Ég var blekkt eins og aðrir, eins og fjölmiðlar, almenningur og aðrir. Ég er bara mest undrandi á því að þessir aðilar sem við borguðum fúlgur fjár fyrir að vera ráðgjafar, HSBC, skuli ekki hafa skoðað þetta,“ bætir Valgerður við. Hún segir það þó gott að sannleikurinn hafi verið leiddur í ljós. Valgerður segir umhugsunarefni hvort það þurfi ekki að rannsaka sölu Landsbankans líka á þessum tíma. 

Steingrímur J. Sigfússon var formaður VG og sat í stjórnarandstöðu á þeim tíma þegar bankinn var seldur. Hann segist ekkert geta fullyrt um það að stjórnvöld hafi vitað af blekkingunum. 

„Ég vil ekki ætla mönnum það að hafa haft grun sem þeir hafi bælt niður,“ segir Steingrímur. Þetta sé hins vegar þáttur sem verði að fara betur yfir. 

„Hvernig gat þetta farið framhjá öllum?“ segir Steingrímur.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×