Tónlist

Sörf er stuðtónlist

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Brim taka meðal annars Jólasveinar ganga um gólf.
Brim taka meðal annars Jólasveinar ganga um gólf.
„Fólk verður í miklu stuði enda er sörftónlist svo mikil stuðtónlist. Það er um að gera að skella sér eftir jólasteikina og dansa aðeins af sér kílóin,“ segir Bibbi Barti, meðlimur sörfsveitarinnar Brim sem spilar á jólaballi Húrra á öðrum í jólum. „Það er hrikalega góð stemning fyrir svona jólagiggum en við í Brim byrjuðum aftur í sumar og slógum svona vel í gegn.“

Hljómsveitin mun svo hita upp fyrir jólaballið um helgina með því að spila á tónleikum á Kexi Hostel á laugardaginn. Þeim til halds og trausts verður hin síkáta dj. flugvél & geimskip.

„Við erum með eitthvað af nýjum lögum á prógramminu. Meðal annars Jólasveinar ganga um gólf í sörf-útsetningu,“ segir Bibbi en það lag tók Bibbi einmitt ásamt Heiðu í Unun á einu jólatónleikum sem Brim hefur spilað á áður – í jólapartíi sjónvarpsþáttarins Ó-sins árið 1996. „Þá spilaði ég reyndar með gínum á sviðinu því hinir meðlimir hljómsveitarinnar voru fastir í prófum.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×