Glamour

Sonur Sofia Vergara gerist fyrirsæta

Ritstjórn skrifar
Sonur leikkonunnar Sofia Vergara hefur tekið sín fyrstu skref í fyrirsætubransanum. Hinn 24 ára gamli Manolo Gonzales Vergara sat fyrir í Paper Magazine og var móðir hans afar stolt af honum fyrir vikið. Hún birti mynd úr myndaséríunni á Instagram síðu sinni sem má sjá hér fyrir neðan.

Það er greinilegt að Manolo hefur erft útlitið frá móður sinni ásamt leiklistaáhuganum en hann er um þessar mundir að leikstýra stuttmynd sem heitir Post Mortem. Greinilega miklir hæfileikar sem hafa gengið í erfðir í þessari fjölskyldu.

http://bit.ly/2hI420D @papermagazine @manologonzalezvergara

A photo posted by Sofia Vergara (@sofiavergara) on






×