Formúla 1

Sonur Schumacher vann sinn fyrsta kappakstur

Mick Schumacher er byrjaður að sprauta kampavíni aðeins 16 ára gamall.
Mick Schumacher er byrjaður að sprauta kampavíni aðeins 16 ára gamall. vísir/getty
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Það á svo sannarlega vel við í tilviki Michael Schumacher og sonar hans, Mick.

Hinn 16 ára gamli Mick Schumacher hóf feril sinn í Formúlu 4 um nýliðna helgi er hann tók þátt á móti í Berlín.

Schumacher gerði sér lítið fyrir og kom fyrstur í mark. Mikils er vænst af honum í framtíðinni.

Faðir hans varð heimsmeistari í Formúlu 1 alls sjö sinnum á sínum ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×