Lífið

Söngvakeppni 2016: Eitt þessara tólf laga verður framlag Íslands í Stokkhólmi

Atli Ísleifsson skrifar
María Ólafsdóttir flutti framlag Íslands í síðustu Eurovision-keppni sem fram fór í Vínarborg í maí.
María Ólafsdóttir flutti framlag Íslands í síðustu Eurovision-keppni sem fram fór í Vínarborg í maí. Vísir/EPA
Tilkynnt hefur verið um hvaða tólf lög munu keppa til úrslita í Söngvakeppninni í febrúar á næsta ári. Alls bárust 260 lög í keppnina að þessu sinni og hefur sérstök valnefnd nú valið þau tólf lög sem munu keppast um að verða framlag Íslendinga í Eurovisionkeppninni sem haldin verður í Stokkhólmi í maí á næsta ári.

Karl Olgeirsson og Greta Salome Stefánsdóttir eiga bæði tvö lög að þessu sinni. Greta Salome samdi og flutti lagið Never Forget sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision-keppninni sem fram fór í Aserbaídsjan árið 2012.



Lögin sem verða í Söngvakeppninni 2016

1. Lag: Kreisí

Lag:  Karl Olgeirsson.

Texti: Karl Olgeirsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. 

Flytjandi:  Sigga Eyrún



2. Lag: Óvær 

Lag og texti: Karl Olgeirsson. 

Flytjandi:  Helgi Valur Ásgeirsson.



3. Lag: Ótöluð orð

Lag og texti:  Erna Mist og Magnús Thorlacius. 

Flytjendur:  Erna Mist og Magnús Thorlacius.



4. Lag: Hugur minn er 

Lag og texti:  Þórunn Erna Clausen 

Flutningur: Erna Hrönn Ólafsdóttir og Hjörtur Traustason



5. Lag:  Spring yfir heiminn 

Lag: Júlí Heiðar Halldórsson.

Texti:  Júlí Heiðar Halldórsson og Guðmundur Snorri Sigurðarson.  Flytjendur: Þórdís Birna Borgarsdóttir og Guðmundur Snorri Sigurðarson.



6. Lag: Augnablik

Lag: Alma Guðmundsdóttir og James Wong. 

Texti:  Alma Guðmundsdóttir, James Wong og Alda Dís Arnardóttir. 

Flytjandi:  Alda Dís Arnardóttir



7. Lag:  Óstöðvandi
 

Lag: Kristinn Sigurpáll Sturluson, Ylfa Persson og Linda Persson. 

Texti: Alma Rut Kristjánsdóttir, Ylfa Persson og Linda Persson. 

Flytjandi:  Karlotta Sigurðardóttir



8. Lag:  Fátækur námsmaður 

Lag og texti:  Ingólfur Þórarinsson. 

Flytjandi:  Ingólfur Þórarinsson.



9. Lag:  Á ný

Lag og texti: Greta Salome Stefánsdóttir.

Flytjandi:  Elísabet Ormslev. 



10. Lag: Raddirnar 

Lag og texti:  Greta Salome Stefánsdóttir. 

Flytjandi:  Greta Salome Stefánsdóttir.



11. Lag: Ég sé þig 

Lag og texti:  Sigríður Eir Zophoniasardóttir og Jóhanna Vala Höskuldsdóttir. 

Flytjendur:  Hljómsveitin Eva - Sigríður Eir Zophoniasardóttir og Jóhanna Vala Höskuldsdóttir.



12. Lag:  Ég leiði þig heim 

Lag og texti: Þórir Úlfarsson. 

Flytjandi: Pálmi Gunnarsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×