Bíó og sjónvarp

Söngleikur Coldplay um Game of Thrones

Samúel Karl Ólason skrifar
Hljómsveitin Coldplay og leikarar úr Game of Thrones tóku höndum saman fyrir Dag rauða nefsins í Bandaríkjunum. Saman gerðu þau grínskets um gerð söngleikjar um Game of Thrones. Sketsinn er settur fram sem heimildarmynd um gerð söngleiksins og er myndin talsett af engum öðrum en Liam Neeson.

Með sanni má segja að útkoman sé einstaklega fyndin.

Í atriðinu kemur fram að illa hafi gengið að fá leikaranna til að mæta í fyrstu. Leikarinn Mark Addy, sem lék konunginn Robert Baratheon, mætti einungis vegna þess að honum var sagt að Sean Bean myndi mæta og hann skuldaði Addy fimm pund. Auk hans mætti Iwan Rheon, sem leikur hinn grimma Ramsay Bolton og var hann mjög spenntur.

Að lokum komu þó fjölmargir leikarar til að taka þátt í söngleiknum og voru þau flest í fyrstu að sækjast eftir ókeypis mat.

Atriðið í heild sinni. Fyrsta rómantíska ballaðan um sifjaspell á löngum ferli Coldplay. Rastafarian Targaryen Still going strong





Fleiri fréttir

Sjá meira


×