Enski boltinn

Son með þrennu er Tottenham slátraði Millwall

Stefán Árni Pálsson skrifar
Son fagnar einu marki sínu í dag.
Son fagnar einu marki sínu í dag. vísir/getty
Tottenham Hotspurs valtaði yfir Milwall í 8-liða úrslitum enska bikarsins og fór leikurinn, 6-0, en hann fór fram á White Hart Lane.

Heung-Min Son skoraði þrennu í leiknum, Christian Eriksen var með eitt, Dele Alli gerði eitt mark og Vincent Janssen skoraði eitt.

Harry Kane meiddist nokkuð illa á tíundu mínútu leiksins var borinn af velli. Það er strax komið í umræðuna að Kane gæti verið frá í nokkrar vikur.

Tottenham er því komið í undanúrslit bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×