Lífið

Sömdu sumarsmell þunnir upp á hótelherbergi á Benidorm

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þvílíkt listaverk.
Þvílíkt listaverk.
Strákarnir í Dúbíló tóku nýjasta hittarann sinn í beinni útsendingu í Brennslunni á FM957 í morgun. Lagið ber titilinn Á Beni og er hið skemmtilegasta en það voru þeir Pálmar Örn Guðmundsson og Svanur Bjarki Ólafsson sem sömdu lagið í þynnkunni á spænska sólarstaðnum Benidorm. Saman mynda þeir dúóið Dúbíló.

„Við höfum verið að spila saman í um tíu ár,“ segir Pálmar Örn en þeir sömdu lagið skelþunnir uppi á hótelherbergi á Spáni á síðasta ári.

Hér að neðan má hlusta á lagið en þeir tóku það í beinni útsendingu á FM957 í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×