Lífið

Sölvi Fannar úr hættu - hákarlar á tökustað

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndband sem sjá má neðar í grein tók ungur drengur af hákarli sem birtist skyndilega við strönd Korsíku í vikunni. Ströndin, sem er vinsæll ferðmannastaður, var rýmd í kjölfarið.

Það sem merkilegt þykir er að Sölvi Fannar Viðarsson, 43 ára, framkvæmdastjóri, leikari, einkaþjálfari, fyrirlesari, rithöfundur, ljóðskáld, tónlistarmaður og dansari var staddur á strönd í nágrenninu á sundskýlunni einni saman að leika í bíómynd sem ber heitið Laser Guided. Tökum var frestað og Sölvi yfirgaf ströndina óskaddaður ásamt tökuliði.



Við tökur á atriðinu sem þessi mynd er tekin er ég búinn að vera að synda í sjónum í talsverðan tíma, sem tekur skemmtilega á, enda er margt sundfólk stórglæsilega mótað af íþróttinni sem það stundar, segir Sölvi.
Allt féll í dúnalogn skyndilega

Hvað í ósköpunum gerðist? Á sama tíma og ótrúlega fallegur regnbogi birtist á himninum, svo fallegur að manni datt helst í hug að æðri máttarvöld hefður verið að verki, datt allt í einu allt í dúnalogn hér á ströndinni, sem var óvenjulegt miðað við dagana á undan," útskýrir Sölvi og heldur áfram.

Búið að banna öllum að fara í skjóinn

Það var samt frábært upp á að geta klárað að taka það sem verið var að skjóta, þar sem ég var í sjónum. Hins vegar kom í ljós að það var vegna þess að það var búið að banna öllum að fara í sjóinn vegna þess að það hafði sést til hákarla alveg við ströndina, nánar til tekið Bláháfa, rétt eins og við Barselóna og við suðurströnd Frakklands þar sem fyrir skömmu var einnig bannað að fara í sjóinn." 

Hefur mikinn áhuga á hákörlum

Það vill svo skemmtilega til að ég hef talsverðan áhuga á hákörlum. Hákarlar, þar með talið Bláháfar eru heillandi skepnur en Bláháfar eru með allra hraðskreiðustu háfunum. Þrátt fyrir að ég syndi frekar hratt með blöðkum, snorklu og grímu þá er áætlað að Bláháfur, sem verður rúmir tveir og jafnvel hátt í 4 metrar á lengd, geti synt á allt að 35 km hraða en sumir vilja meina allt að 70 km hraða á klukkustund og jafnvel enn hraðar." 

Helst hafa Bláháfar ráðist á fólk sem er að veiða fiskmeti með skutulbyssum og hengda bráðina utan á sig. Þetta hef ég stundað sjálfur með góðum árangri af klettunum milli Kefla- og Helguvíkur sem er mjög gaman en skítkalt og þá sér í lagi þegar maður er bara á skýlunni með köfunargrímu og þess háttar," útskýrir hann.

Hér á Korsíku hef ég ekki haft tíma til þess að veiða með skutulbyssu þó ég hafi talsvert kafað hérna, án köfunarbúnaðar, enda sjórinn ótrúlega tær og merkilega heitur, sem er kærkomin tilbreyting."

Hér er Sölvi í hlutverki Egils.
Hvaða hlutverk leikur þú í myndinni Laser Guided? „Ég leik Egil Sturlaugsson, þann sem ég leik líka í myndinni Zone 261 en hann er aðalsöguhetjan í bók sem ég er að skrifa og kemur út á sama tíma og Zone 261 verður frumsýnd á Íslandi en myndin er einmitt frumraun tröllsins Hafþórs Júlíuss Björnssonar á hvíta tjaldinu sem og fleiri vaskra íslenskra víkinga sem einnig leika í myndinni," segir Sölvi.

Vefsíða Sölva á IMDB.

Sjá frétt um hákarlana á Korsíku hér.


Tengdar fréttir

Kviknakinn á toppnum

Mynd af Sölva Fannari Viðarssyni þar sem hann stendur kviknakinn á mosavöxnu fjalli með sverð á milli fótanna vakti athygli okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×