Fótbolti

Solskjær búinn að næla í annan íslenskan framherja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann Sigurðarson Mynd/Molde Fotballklubb á Youtube
Björn Bergmann Sigurðarson hefur gert samning við norska úrvalsdeildarliðið Molde og mun spila með liðinu út tímabili. Þetta er staðfest á heimasíðu félagsins.

Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde, er því kominn með annan íslenskan framherja í liðið sitt en Eiður Smári Guðjohnsen spilaði með Molde í aðdraganda EM í Frakklandi.

Björn Bergmann er að snúa aftur til liðsins en hann kom þangað á láni frá Wolves tímabilið 2014 og varð þá norskur meistari með liðinu. Samningur Björns og Wolves rann út í sumar og hann var því að leita sér að nýju liði.

„Eftir að ég talaði við Ole Gunnar þá vissi ég að ég vildi koma til baka. Það var frábært að vera hérna í fyrra skiptið fyrir tveimur árum síðan. Samningaviðræðurnar gengu hratt og vel fyrir sig og ég er mjög ánægður," sagði Björn Bergmann Sigurðarson við heimasíðu Molde.

Björn Bergmann skoraði 4 mörk í 17 leikjum með Molde sumarið 2014 en var óheppin með meiðsli eins og oft áður á sínum ferli. Hann missti líka mikið úr á síðasta tímabili með Wolves. Björn Bergmann spilaði í fjögur tímabil með Lilleström áður en hann fór til Englands.

Ole Gunnar Solskjær segist hafa fylgst með Birni frá árinu 2011 og hann hrósar íslenska framherjanum mikið á heimasíðu Molde.

„Hann er líkamlega sterkur leikmaður og mjög klókur. Hann er sterkur í loftinu og með góðar tímasetningar. Hann getur spilað sem tía og fengið boltann í fæturna. Vinstri og hægri fóturinn er nánast jafnöflugur hjá honum og hann vill spila boltanum. Hann er líka vinnusamur eins og allir íslenskir leikmenn. Það mikilvægasta er að hann er liðsmaður og mun gera okkur að betra liði," sagði Ole Gunnar Solskjær.

Það er hægt að sjá myndband frá Molde um komu íslenska framherjans með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×