Innlent

Sólríkt í miðborginni: Tók níu borgara og sigraði

Linda Blöndal skrifar
Fádæma blíða var í höfuðborginni í dag og markaðir víða settir upp undir berum himni. Matreiðsla utandyra setti sérstaklega mark sitt á helstu kennileiti borgarinnar. Fólk naut sólarinnar og má segja að það hafa borðað hvert í kapp við annað.

KRÁS, matar og götumarkaður, opnaði á ný í dag í Fógetagarðinum í Reykjavík, annað árið í röð, og verður opinn alla laugardaga í sumar.

Þá fór hamborgarakappát fram við Austurvöll á vegum veitingastaðarins Dirty Burger and Ribs. Markús Löve Mogensson sigraði eftir að hafa torgað níu borgurum, kastaði reyndar upp í miðri keppni, en það kom ekki að sök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×