Innlent

Sólin leikur um mig algjörlega bera

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Anton Brink
Óhætt er að segja að veðrið hafi verið gott á Íslandi það sem af er sumri og varð engin breyting á því á höfuðborgarsvæðinu í gær, og reyndar heldur ekki í dag.

Fjöldi fólks lagði leið sína í Nauthólsvík, fækkaði fötum og lagði inn á D-vítamín forðann fyrir veturinn. Sumir busluðu, aðrir byggðu sandkastala og enn aðrir léku sér með bolta.

Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, skellti sér í Nauthólsvík og tók að sjálfsögðu myndavélina með. Að neðan má svo hlusta á sumarslagarann Sumarið er komið með Stuðmönnum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×