Fótbolti

Sögulegur sigur Albaníu | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Albanir fagna í leikslok.
Albanir fagna í leikslok. vísir/epa
Sögulegur atburður átti sér stað Stade de Lyon í kvöld þegar Albanía vann sinn fyrsta sigur á stórmóti í fótbolta.

Albanir báru þá sigurorð af Rúmenum með einu marki gegn engu í A-riðli á EM 2016.

Armando Sadiku skoraði eina mark leiksins á markamínútunni, þeirri fertugustuogþriðju, með skalla eftir fyrirgjöf Ledian Memushaj frá hægri.

Þetta var fyrsta mark Albaníu á stórmóti en þeir töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum á EM án þess að skora. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Albana á Rúmenum í 68 ár.

Albanía endar því í 3. sæti A-riðils en óvíst er hvort stigin þrjú duga liðinu til að komast áfram. Það kemur ekki ljós fyrr en úrslit í öðrum riðlum liggja fyrir.

Rúmenar eru hins vegar úr leik en þeir náðu aðeins í eitt stig í leikjunum þremur í riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×