Sport

Sögulegt kvöld hjá Brady sem jafnaði met Manning

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brady fagnar í leiknum í gær.
Brady fagnar í leiknum í gær. vísir/getty
Tom Brady og félagar í New England Patriots lentu í kröppum dansi gegn NY Jets í NFL-deildinni í gær en allt fór vel að lokum í sögulegum sigri Patriots.

Sigurinn í gær var 200. sigurleikur Brady með Patriots og hann jafnaði þar með Peyton Manning. Þeir deila nú efsta sætinu yfir þá sem hafa unnið flesta leiki í sögu deildarinnar.

Hinn 39 ára gamli Brady komst einnig yfir 60 þúsund jarda múrinn í leiknum en hann er aðeins fimmti leikstjórnandinn í sögu deildarinnar sem nær því.

Meistarar Denver Broncos urðu að sætta sig við tap á heimavelli gegn Kansas í nótt. Þar fengust úrslit í framlengdum leik.

Denver er því komið í þriðja sætið í sínum riðli sem er sá besti í deildinni.

Topplið riðilsins er Oakland Raiders sem vann ótrúlegan sigur á Carolina. Eftir að hafa verið yfir, 24-7, í hálfleik þá skoraði Carolina 25 stig á tólf mínútum og komst yfir.

Í millitíðinni hafði litli fingur Derek Carr, leikstjórnanda Oakland, farið úr lið á kasthöndinni en hann snéri aftur með hanska og náði að leið lið sitt til sigurs.

Úrslit:

Atlanta-Arizona  38-19

Baltimore-Cincinnati  19-14

Buffalo-Jacksonville  28-21

Chicago-Tennessee  21-27

Cleveland-NY Giants  13-27

Houston-San Diego  13-21

Miami-San Francisco  31-24

New Orleans-LA Rams  49-21

Tampa Bay-Seattle  14-5

NY Jets-New England  17-22

Oakland-Carolina  35-32

Denver-Kansas City  27-30

Staðan í NFL-deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×