Lífið

Söfnuðu tæplega 13 milljónum á einum degi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Verkefnið var mjög vel heppnað.
Verkefnið var mjög vel heppnað. vísir

Fyrirtækið BESTSELLER stóð fyrir alþjóðlegum góðgerðadegi þann 10. apríl síðastliðinn. Þann dag var öll upphæðin sem viðskiptavinir versluðu fyrir í öllum verslunum BESTSELLER um allan heim gefin til góðgerðamála. Helmingur af allri sölu á Íslandi rann til Krabbameinsfélags Íslands og hinn helmingurinn skiptist á milli UNICEF, GAIN og Save the Children / Barnaheill.

Lovísa Pálmadóttir, markaðsstjóri BESTSELLER á Íslandi segir að hugmyndin hafi sprottið út frá því að fyrirtækið er 40 ára á þessu ári og í tilefni afmælisins hafi þau viljað gera eitthvað alveg einstakt. Verslanir um allan heim tóku þátt og dagurinn þótti takast mjög vel, á alþjóðavísu söfnuðust 2,5 milljarður íslenskra króna.

Þrjú alþjóðleg verkefni voru valin sem snúa að aðbúnaði barna. UNICEF notaði peningana til að berjast gegn malaríu í ríkjum Afríku. Save the Children lagði upphæðina í verkefni sem miðar að því að mennta börn í dreifbýli Kína með uppbyggingu skóla. Samtökin GAIN sem berjast gegn vannæringu barna notaði peningana á Indlandi þar sem 48% barna undir fimm ára aldri þjáist af krónískri vannæringu.  Að auki voru góðgerðasamtök í 39 löndum sem nutu góðs af þessu söfnunarátaki.

Starfsfólk BESTSELLER á Íslandi fékk að velja hvaða samtök myndu fá peninginn sem safnaðist hérlendis, alls 12,6 milljónir. 

„Flestir starfsmenn okkar voru hlynntir og sammála því að það ætti að gefa Krabbameinsfélaginu upphæðina. Það kom í ljós að allir gátu tengt við það. Það spannar svo stórt svið,” segir Lovísa. Krabbameinsfélagið er rekið af styrktarfé þannig að það skiptir máli fyrir það að taka þátt í svona verkefni.

Forrsvarsmenn BESTSELLER hafa nú sent frá sér myndband frá deginum og er ástæðan fyrir því að þau vilja sýna þjóðinni og þeim sem komu og létu gott af sér leiða hver ávinningur verkefnisins var og hvernig verið er að nýta þá fjárhæð sem safnaðist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×