Erlent

Sofnaði við stýrið á strætisvagni og keyrði á fjölda bíla – Myndbönd

Samúel Karl Ólason skrifar
65 ára gamall bílstjóri keyrði á fjölda bíla á strætisvagni í Bandaríkjunum fyrir áramót, en lögreglan hefur nú birt myndbönd úr strætisvagninum. Tveir slösuðust í árekstrinum, en ökumaðurinn steig í fyrstu á bensíngjöfina þegar hann vaknaði.

Á vef Detroit Free Press segir að strætisvagninn hafi verið nærri því tómur. En á einu myndbandanna má sjá einn farþega.

„Af hverju stöðvaðist strætisvagninn ekki?“ sagði Leon Yusuf Rasheed við lögregluþjóna. „Þá áttaði ég mig á því að ég hefði stigið á bensíngjöfina.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×