Innlent

Sofandi í öndunarvél eftir bílslys við Hellu

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi slyssins í gær.
Frá vettvangi slyssins í gær.
Sá sem fluttur var alvarlega slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu nærri söluskálanum við Landvegamót á Hellu á öðrum tímanum í gær er sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítala Íslands.

Þrír voru í bílnum, tveir karlmenn og ein kona, öll á þrítugsaldri. Hinir tveir farþegar bílsins voru fluttir með sjúkrabíl á Landspítalann en meiðsli þeirra voru talin minna alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×