Innlent

Sofa í Dreka tilbúnir að mæta á vaktina í fyrramálið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá flugi vísindamanna í námunda við gossvæðið á fimmtudag.
Frá flugi vísindamanna í námunda við gossvæðið á fimmtudag. Vísir/Friðrik Þór
„Það hefur dregið mikið úr þessu. Upp úr eitt var þetta talsvert meira en það er núna,“ segir Benedikt Ófeigsson hjá Veðurstofunni sem fylgst hefur með gangi mála í námunda við gosið í kvöld.

Benedikt tilheyrir átta manna hópi sem verið hefur á svæðinu og fylgst með gangi mála í kvöld. Hann var á leiðinni upp í Drekagil í Dyngjufjöllum þar sem hann vonaðist til að festa aðeins svefn áður en hann mætti aftur á svæðið.

Með Benedikt í för eru íslenskir vísindamenn og hópur jarðskjálftafræðinga við háskólann í Cambridge sem hafa stundað skjálftamælingar á svæðinu frá árinu 2006. Hann var kominn í tíu til fimmtán kílómetra fjarlægð frá gosinu þegar Vísir náði tali af honum. Þaðan sáust engin ummerki um gos þótt þau séu vissulega enn fyrir hendi.

Benedikt mætti á svæðið í dag ásamt öðrum fulltrúa frá Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands. Tveir fulltrúar munu standa vaktina nærri gosinu næstu tímana og meðal annars Þorbjörg Ágústsdóttir, margfaldur Ísandsmeistari í skylmingum og jarðeðlisfræðingur.


Tengdar fréttir

Bíða átekta í Þingeyjarsýslu

Ingólfur Freysson, formaður neyðarnefndar í Þingeyjarsýslu, var einn á vakt þegar Vísir náði af honum tali á öðrum tímanum í nótt.

Eldgos hefur ekki áhrif á flugumferð

"Við sjáum ekki á þessu stigi að þetta hafi áhrif á flug okkar. Hugsanlega yrðu minniháttar breytingar gerðar en ekki mikið meira en það.“

Gosið hófst upp úr miðnætti

„Það eru sömu upplýsingar og við erum að fá,“ segir Rögnvaldur Ólafsson í Samhæfingarmiðstöð Almannavarna í samtali við Vísi aðspurður hvort gosið hafi minnkað töluvert.

Sérfræðingur Veðurstofunnar: Sprungan er nokkur hundruð metra löng

"Það sem við vitum núna er að við höfum fengið staðfestingu um eldgos í gegnum vefmyndavélar ,“ segir Melissa Anne Pfeffer, sérfræðingur á sviði ösku- og efnadreifingar, í samtali við Vísi í nótt en hún var stödd í höfuðstöðvum Veðurstofu Íslands.

Fundað í samhæfingarmiðstöðinni

Á annan tug manns eru mættir til vinnu í Samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógarhlíð sökum þess að eldgos er hafið í Holuhrauni á milli Dyngjujökuls og Öskju norðan við Vatnajökul.

Sprungan talin vera um 1 kílómetri á lengd

Talið var í upphafi að sprungan, sem er um fimm kílómetra norðan Dyngjujökuls og sunnan Öskju, væri 100-300 metra löng. Nú virðist sem hún sé töluvert lengri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×