Glamour

Snýr keilu­brjósta­haldarinn aftur?

Ritstjórn skrifar
Stella sýndi keilubrjóstahaldara í París fyrir nokkrum vikum.
Stella sýndi keilubrjóstahaldara í París fyrir nokkrum vikum.
Stella McCartney sendi fjölmargar fyrirsætur niður tískupallinn í París í keilubrjóstahaldara. Keilubrjóstahaldarinn hefur varla sést frá því að Madonna gerði hann frægann í byrjun 10 áratugarins. 

Keilubrjóstahaldarinn getur verið erfitt trend en þó væri forvitnilegt að prufa það. Brjóstin fá þá öðruvísi lögun sem sést oftast vel í gegnum boli eða peysur. Það er spurning hvort að þessi nærfatatíska nái flugi eins og svo margt annað frá þessu tímabili upp á síðkastið.

Madonna gerði keilu brjóstarhaldarann frægann 1990.





×