Enski boltinn

Snýr David Luiz aftur til Chelsea?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luiz gæti verið á förum frá frönsku meisturunum.
Luiz gæti verið á förum frá frönsku meisturunum. vísir/getty
David Luiz, dýrasti varnarmaður sögunnar, gæti snúið aftur til Chelsea.

Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Chelsea gert Paris Saint-Germain rúmlega 30 milljóna punda tilboð í hinn 29 ára Luiz.

Brasilíumaðurinn kom til Chelsea frá Benfica í janúar 2011 og lék með Lundúnaliðinu í þrjú ár. Sumarið 2014 var Luiz svo seldur til PSG fyrir 50 milljónir punda.

Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, vill bæta miðverði við leikmannahóp liðsins áður en félagaskiptaglugginn lokar í kvöld.

Conte tókst hvorki að landa Alessio Romagnoli né Kalidou Koulibaly og hefur því beint athygli sinni að Luiz sem vann þrjá stóra titla með Chelsea á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×