Lífið

Snýr aftur í sjónvarpið eftir 25 ár

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
 Jón Óttar verður sjötugur á næsta ári en segist ekki óttast það að eldast vegna þess að hann hugsi vel um sig og líður eins og hann sér þrítugur. 
Fréttablaðið/Vilhelm
Jón Óttar verður sjötugur á næsta ári en segist ekki óttast það að eldast vegna þess að hann hugsi vel um sig og líður eins og hann sér þrítugur. Fréttablaðið/Vilhelm
Jón Óttar kemur inn á Hilton Nordica-hótelið veðurbarinn eftir að hafa fest í blindbyl uppi á heiði á leið sinni í viðtalið. Eftir að hafa pantað sér grænt te þá fær hann sér sæti og segir frá því hvernig hann komst loks á áfangastað eftir að hafa keyrt á fimm kílómetra hraða nánast blindandi. Hann lætur það ekki á sig fá enda ýmsu vanur.

Talið berst að endurkomu Jóns Óttars í sjónvarpið, á sjónvarpsstöðina sem hann stofnaði fyrir 28 árum. Sjálfur hvarf hann á braut frá stöðinni árið 1990 en árin þrjú sem hann átti á Stöð 2 voru fjörug og annasöm.

Draumur verður að veruleika

„Það var alltaf draumur minn að gera svona ævintýraþætti um þetta ótrúlega land okkar þegar ég var á Stöð 2. Í stað þess að gera Stöð 2 að vídeóstöð fyrir Reykvíkinga – eins og bankinn okkar krafðist – vorum við staðráðin í að gera hana að sjónvarpi allra landsmanna. Við fengum því snemma þá hugmynd að fara með stöðina út á land með útsendingu frá ótal stöðum allt í kringum landið. Þátturinn hét einfaldlega Stöðin á staðnum og breytti lífi mínu.

Ég heillaðist af landsbyggðinni á þessu ferðalagi. Náttúruperlurnar og fegurðin í landslaginu voru auðvitað stórbrotnar en það var fyrst og fremst fólkið, líf þess og sögur sem heilluðu mig,“ segir hann og fær sér tesopa áður en hann heldur áfram.

„Síðan, kannski af því að við búum erlendis, þá sér maður Ísland í svolítið öðru vísi og ef til vill rómantískara ljósi. Það sem mér finnst merkilegast er hvernig ferðamannastraumurinn hefur gerbreytt Íslandi og sérstaklega landsbyggðinni. Í byrjun fóru flestir þessir útlendingar á sömu staðina á suðvesturhorninu en síðan fór fólkið úti á landi að taka í taumana og í dag sjá ferðamenn – erlendir sem innlendir – meira og meira af þessu dulda Íslandi sem beið þeirra á bak við tjöldin. 

Ekki aðeins hefur verið byggður urmull af frábærum gisti- og veitingastöðum heldur er magnað að sjá öll þessi nýju söfn og setur sem hafa verið reist utan um galdra, skrímsli, drauga, Íslendingasögur og svo framvegis. Svo að ekki sé talað um allar ævintýraferðirnar – á bátum, jeppum og snjósleðum sem ferðafólki til ómældrar gleði leiðir það ofan í hella, niður í gíga og upp á jökla. Heimurinn er með öðrum orðum loks að byrja að kynnast því undralandi sem Ísland er og verður alltaf. Það má því segja að þetta sé hálfgerður óður til landsbyggðarinnar og alls þess ótrúlega starfs sem þar er verið að vinna,“ segir Jón Óttar um þættina Dulda Ísland.





Brennandi áhugi 

Jón Óttar stofnaði Stöð 2 árið 1986 ásamt Hans Kristjáni Árnasyni. Þeir félagar ráku stöðina þessi viðburðaríku fyrstu þrjú ár. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sjónvarpi. Þegar ég fór út í þetta á sínum tíma þá var það ekki síður vegna brennandi áhuga á þáttagerð en sjónvarps-„bisness“. Á þeim tíma fóru yfir 90 prósent af peningum til dagskrárgerðar í fréttir og fréttamagasín. Í dag er sjónvarp að gerbreytast. Fréttir er eitthvað sem allir gera lesið á netinu, meira að segja nýrri fréttir. Í staðinn verður þáttagerð, þar á meðal leiknir þættir, æ mikilvægari. 

Mér finnst stórkostlegt hvernig Stöð 2 og RÚV hafa tekið á þessum breytingum og hvernig samkeppnin á milli þeirra hefur bætt báðar stöðvarnar. Það var auðvitað ómetanlegt að endurnýja kynnin við Stöð 2. Það var alltaf gaman á Stöð 2 og það hefur ekkert breyst. Töku- og hljóðmennirnir sem unnu þetta með okkur voru ekki aðeins framúrskarandi allir sem einn heldur og frábærir ferðafélagar og ekki er klipparinn okkar og hitt tæknifólkið síðra,“ segir Jón Óttar um þættina Dulda Ísland.

Hefur aldrei litið til baka

Áhuginn á sjónvarpi var það mikill að hann hætti í góðu starfi sem dósent í efnafræði og yfirmaður námsbrautar í matvæla- og næringarfræði við Háskóla Íslands til þess að sinna því sem brann á honum. „Ég var í draumastöðu þarna, en ég gekk bara út og hef aldrei litið til baka. Hluti af ástæðunni var að mér fannst ekki gaman að vinna fyrir ríkið en það er of löng saga,“ segir hann kankvís.

Eftir að Stöðvar 2-ævintýrið tók enda flutti hann ásamt eiginkonu sinni, Margréti Hrafnsdóttur, á vit annarra ævintýra í kvikmyndaborginni Los Angeles. Þau settust bæði á skólabekk. Fyrst lærði hann handritaskrif og þar næst kvikmyndagerð. 

Síðan kynntust þau Herbalife og hafa starfað við það á annan áratug og eru í dag hluthafar í fyrirtækinu. „Það passaði auðvitað vel fyrir mig því ég var með þessa menntun í næringarfræði,“ segir hann. Hjónin eru enn búsett erlendis en bjuggu hér að hluta á árunum 2007-2012 á meðan Ragnar, sonur þeirra, gekk hér í menntaskóla. 



Ferðuðust á ævintýrastaði

Jón Óttar og Margrét hafa undanfarin ár verið að sinna hinum ýmsu verkefnum, meðal annars framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsþátta. Þau komu heim síðasta sumar til þess að taka upp Dulda Ísland og ferðuðust þá um landið þvert og endilangt á hina ýmsu ævintýrastaði. Í hverjum þætti fær Jón Óttar þekkta Íslendinga sem ferðafélaga. Meðal ferðafélaga eru Magnús Scheving, Yoko Ono, Eiður Smári Guðjohnsen, Þorvaldur Davíð, Björn Hlynur, Eivör Pálsdóttir og Vilborg Arna Gissurardóttir. „Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Við vildum lenda í ævintýrum, fá söguna á bak við staðina og hitta frábært fólk,“ segir hann. 

Eins gamall og hann vill vera 

Það eru ekki allir sem snúa aftur í sjónvarp komnir á sjötugsaldurinn. „Ég hugsa lítið um aldurinn, segir Jón Óttar. Mér líður eiginlega alltaf eins og ég sé þrítugur. Þú ert í rauninni eins gamall og þér líður. Það eru alltaf að koma fleiri og fleiri rannsóknir sem sýna það. Ef þér finnst þú vera gamall þá ertu gamall. Ef þér finnst þú vera ungur þá ertu ungur,“ segir hann hugsi. 

Hann segir það líka leika stórt hlutverk hvernig lífsstíl við veljum okkur. „Við erum í þessu kolvitlausa mataræði og lífsstíl. Ég hef alltaf reynt að hugsa vel um þetta. Það er komið frá mömmu sem var mikið náttúrubarn og kenndi okkur systkinunum að nýta náttúruna. Ef ég hefði ekki lifað eftir þessu þá væri ég steindauður því ég er með frekar léleg gen. Það er mikið af hjartasjúkdómum, krabbameini og sykursýki í báðum ættum hjá mér.

Margrét og Jón Óttar á brúðkaupsdaginn, 28. desember í fyrra.
Í dag eru allir að gera sig veika með því að vera of þungir og borða vitlaust. Það sem gerist hjá eldra fólki er að líkaminn fyllist af bólgum og það hrannast upp sjúkdómar. Við þurfum að huga betur að þessu. Vð þurfum öll að komast á þennan stað, gerbreyta hugsun okkar og taka ábyrgð á lífi okkar. Átta okkur á því að við erum bara eins gömul og við viljum vera.“

Fylgja draumum sínum 

Aðspurður hvað taki við eftir Dulda Ísland segir hann margt vera í farvatninu. Bæði sjónvarpsþætti og kvikmyndaverkefni víða um heim. „Það eru fullt af hlutum í gangi sem eru á mismunandi þróunarstigum. Það kemur bara í ljós. Það sakar heldur ekki að við lifum á ótrúlega spennandi og hættulegum tímum,“ bætir hann við hugsi.

„Við Margrét vinnum í því sem okkur langar að gera og fylgjum okkar draumum.“ Inntur eftir því hvort þau hjónin séu svona samrýnd þar sem þau vinni flest allt saman segir hann: „Það fyndna er að við Margrét erum um það bil eins ólík og hægt er að vera, eiginlega algjörar andstæður. Það sem hefur alltaf sameinað okkur eru draumarnir og sú sameiginlega ákvörðun að elta þá hvað sem tautar og raular. Annars hefði þetta sjálfsagt aldrei gengið,“ bætir hann við brosandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×