Bíó og sjónvarp

Snúin fjölskyldutengsl í litlu samfélagi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Líf Huga kemst í uppnám þegar faðir hans hringir.
Líf Huga kemst í uppnám þegar faðir hans hringir.
„Þetta er mannleg dramakómedía um að finna sinn stað í lífinu en einnig um fjarlægðir í samböndum og hvernig fjölskyldutengsl geta orðið skemmtilega snúin í litlu samfélagi,“ segir leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Mynd hans, París norðursins, verður frumsýnd á Íslandi á morgun.

Í myndinni leikur Björn Thors Huga, mann sem hefur fundið sér skjól frá flækjum lífsins í litlu, kyrrlátu þorpi úti á landi. Þegar hann fær símhringingu frá föður sínum, sem leikinn er af Helga Björnssyni, kemst þetta einfalda líf í uppnám. Auk þess fer Nanna Kristín Magnúsdóttir með veigamikið hlutverk í myndinni en tónlistin er í höndum Prins Póló.

Myndin var að mestu tekin upp á Flateyri og segir Hafsteinn að tökurnar hafi gengið eins og í sögu.

„Það myndaðist ótrúlega góður andi sem gerist oft þegar fólk fer út úr sínu daglega umhverfi til að vinna að sameiginlegu markmiði. Ég var umkringdur góðu fólki og bæjarbúar voru allir af vilja gerðir,“ segir leikstjórinn. Hann er hvað þekktastur fyrir kvikmyndina Á annan veg, sem endurgerð var vestan hafs undir titlinum Prince Avalanche í leikstjórn Davids Gordon Green. Í París norðursins líkt og Á annan veg eru fáir karakterar í aðalhlutverki.

„Mér finnst gott að gefa persónum tíma og gefa áhorfendum tíma með persónum upp á að kynnast þeim og geta dýpkað þær enn frekar. Ég vil fara lengra með fáar persónur í staðinn fyrir að kynna margar stutt til sögunnar. Mér finnst áhugavert að kanna samband persónanna og þær sjálfar,“ segir Hafsteinn.

Hafsteinn er leikstjóri sem vert er að fylgjast með.
París norðursins var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Karlovy Vary í Prag í Tékklandi í byrjun júlí. Þar fékk hún góðar viðtökur en fram undan er mikið hátíðarflakk hjá myndinni. Hún verður frumsýnd í Norður-Ameríku á kvikmyndahátíðinni í Chicago í október og ferðast einnig til Brasilíu, Tyrklands, Þýskalands, Englands og Frakklands svo dæmi séu tekin. 

Hafsteinn hefur einnig vakið talsverða athygli fyrir leikstjórn og segir David Gordon Green meðal annars í samtali við vefrit Dazed & Confused að Hafsteinn sé einn af tíu kvikmyndagerðarmönnum í heiminum sem vert sé að fylgjast með. Hafsteinn er að vonum ánægður með þessi viðbrögð.

„Það er frábært þegar fólk tekur vel í verkin manns og upplifur þau sterkt. Ég er mjög þakklátur fyrir það.“


Tengdar fréttir

Ný stikla úr París norðursins

Í stiklunni hljóðar titillag myndarinnar, sem er flutt af Prins Póló og er við það að slá í gegn.

París norðursins slær í gegn

Kvikmyndin París norðursins eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson fær mjög góða dóma eftir heimsfrumsýningu á kvikmyndahátíð í Tékklandi. Hafsteinn Gunnar sagður í hópi bestu leikstjóra Evrópu.

Björn Thors sóttur á limmósínu

Vel var gert við aðalleikarann þegar öllum Flateyringum var boðið á París norðursins í Ísafjarðarbíói um helgina.

París Norðursins í stað Fúsa

París Norðursins, í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, verður frumsýnd á Íslandi þann 5. september

París Norðursins sigurstrangleg í Tékklandi

Kvikmyndin París Norðursins í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar fékk frábærar viðtökur á heimsfrumsýningu á kvikmyndahátíð í Tékklandi í gær.

Flateyringar komnir í kvikmyndaútgerð

"Flateyringar eru höfðingjar heim að sækja,“ segir Sindri Páll Kjartansson, framleiðandi myndarinnar París norðursins sem tekin var upp að mestu á Flateyri á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×