Körfubolti

Snúa aftur í Snæfell

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Snæfell tilkynnti góðan liðsstyrk í gærkvöldi fyrir komandi átök í Domino's-deild kvenna en liðið hefur endurheimt þær Maríu Björnsdóttur frá Val og Gunnhildi Gunnarsdóttur úr Haukum. Báðar eru uppaldar hjá félaginu og léku síðast með því árið 2010.

Þá gekk Snæfell einnig frá nýjum samningi við Helgu Hjördísi Björgvinsdóttur en liðið hefur þó misst Hildi Björgu Kjartansdóttur í nám til Bandaríkjanna.

Snæfell varð Íslandsmeistari í vor og ætlar sér greinilega ekki að láta bikarinn af hendi á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×