Handbolti

Snorri Steinn markahæstur í tapi Nimes

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snorri Steinn er næstmarkahæstur í frönsku deildinni.
Snorri Steinn er næstmarkahæstur í frönsku deildinni. vísir/ernir
Snorri Steinn Guðjónsson var venju samkvæmt markahæstur hjá Nimes sem tapaði 25-29 fyrir Aix á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Snorri Steinn skoraði átta mörk í leiknum en fjögur þeirra komu úr vítum. Hann skoraði fjögur mörk úr 11 skotum utan af velli og nýtti fjögur af fimm vítum sem hann tók.

Snorri Steinn hefur alls skorað 68 mörk í tíu deildarleikjum í vetur. Hann er næstmarkahæstur í frönsku deildinni en aðeins Uwe Gensheimer hjá Paris Saint-Germain hefur skorað fleiri mörk, eða 69.

Ásgeir Örn Hallgrímsson lék ekki með Nimes í kvöld vegna meiðsla.

Nimes er í 7. sæti deildarinnar með tíu stig eftir tíu umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×