Handbolti

Snorri Steinn í mjög flottum hóp með Karabatic og Narcisse

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bestu miðjumenn frönsku deildarinnar. Nikola Karabatic, Snorri Steinn Guðjónsson og Daniel Narcisse.
Bestu miðjumenn frönsku deildarinnar. Nikola Karabatic, Snorri Steinn Guðjónsson og Daniel Narcisse. Mynd/lnh.fr
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi franska liðsins Nimes og íslenska landsliðsins í handbolta, fékk mjög flotta viðurkenningu þegar franska deildin gerði upp tímabilið sitt.

Snorri Steinn var valinn einn af þremur bestu leikstjórnendum deildarinnar ásamt frönsku landsliðsmönnunum Nikola Karabatic og Daniel Narcisse.

Það var franska deildin og sjónvarpsstöðin beIN Sports sem stóðu að baki verðlaununum en það er stór heiður fyrir Snorra að vera í hópi bestu leikmanna deildarinnar.

Það er líka mjög gaman að sjá okkar mann í hóp þessum miklu handboltasnillingum sem hafa unnið allt og það margoft.

Snorri Steinn Guðjónsson meiddist í landsleik á dögunum og gat því ekki klárað tímabilið með Nimes.

Snorri Steinn varð engu að síður fimmti markahæsti leikmaður deildarinnar með 136 mörk í 20 leikjum eða 6,8 að meðaltali í leik. Það voru bara þrír leikmenn í deildinni sem skoruðu fleiri mörk að meðaltali en hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×