Handbolti

Snorri Steinn hættur í íslenska landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. Vísir/Valli
Snorri Steinn Guðjónsson, aðalleikstjórnandi íslenska handboltalandsliðsins í meira en áratug, hefur ákveðið að gefa ekki lengur kost á sér í íslenska A-landsliðið í handbolta samkvæmt heimildum íþróttadeildar 365. Þetta er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið enda hefur Snorri stýrt sóknarleik liðsins í gegnum blómatíma þess.

Snorri Steinn er því ekki í hópi íslenska liðsins fyrir leikina á móti Tékklandi og Úkraínu í undankeppni EM sem fara fram í byrjun næsta mánaðar. Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti hópinn sinn í dag.

Snorri Steinn Guðjónsson er eins og er markahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar en hann hefur skorað 34 mörk í fyrstu fimm leikjum sínum með Nimes á tímabilinu.

Snorri Steinn er því í frábæru formi og væri örugglega valinn í landsliðið ef hann gæfi kost á sér. Hann varð 35 ára gamall á dögunum og hefur spilað með íslenska landsliðinu frá árinu 2001.  

Sjá einnig: Snorri Steinn: Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun

Snorri Steinn hefur leikið sem atvinnumaður í handbolta frá 2003. Hann hefur leikið í frönsku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú tímabili en lék áður bæði í Danmörku (2007-2009 og 2010-2014) og Þýskalandi (2003-07 og 2009-10).

HM í Frakklandi verður aðeins annað stórmótið frá og með EM í Sviss 2006 þar sem Snorri Steinn mun ekki stýra sóknarleik íslenska liðsins. Hann hefur verið með á tíu af síðustu ellefu stórmótum íslenska liðsins eða öllum frá 2006 nema EM í Serbíu 2012.

Snorri Steinn spilaði alls 257 leiki fyrir íslenska landsliðið og skoraði í þeim 848 mörk eða 3,3 að meðaltali í leik.

Snorri Steinn er langmarkahæsti leikstjórnandi Íslands frá upphafi og fimmti markahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni á eftir þeim Guðjóni Val Sigurðssyni, Ólafi Stefánssyni, Kristjáni Arasyni og Valdimar Grímssyni.

Snorri Steinn náði þó ekki að klára síðasta landsleikinn sinn en hann ristarbrotnaði í æfingalandsleik á móti Noregi 5. apríl 2016. Snorri Steinn gat ekki tekið þátt í umspilsleikjunum á móti Portúgal vegna meiðslanna.

Snorri Steinn lék sinn fyrsta A-landsleik á móti Noregi í Kaplakrika 2. nóvember 2001 þá nýbúinn að halda upp á tvítugsafmælið. Þegar leikurinn á móti Tékklandi fer fram í Laugardalshöllinni verða liðin nákvæmlega fimmtán ár frá því að Snorri Steinn klæddist landsliðstreyjunni fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×