Handbolti

Snorri Steinn: Ef allir sinna sínu þá fylgir liðið í kjölfarið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Katar skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins.
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins. Vísir/Eva Björk
„Hver og einn þarf að taka til hjá sjálfum sér og mæta svo til leiks. Ég get ekki útskýrt þetta betur. Þetta snýst um karakter – að menn spili af lífi og sál og leggi hjartað að veði. Svo verðum við að sjá hverju það skilar okkur.“

Þetta segir Snorri Steinn Guðjónsson um undirbúning íslenska liðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Egyptalandi á HM í Katar í dag. Snorri Steinn hefur eins og flestir aðrir átt misjafna daga á HM en afar ólíklegt er að nokkuð annað en sigur gegn Egyptum í dag dugi til að tryggja liðið áfram í 16-liða úrslit.

Hann segir að liðið muni undirbúa sig eins og venjulega fyrir næsta andstæðing í keppninni en lítið annað sé hægt að gera nema að leyfa hverjum og einum að vinna í sínum málum sjálfur.

„Það er erfitt að ætlast til þess að einhverjir fari að efla baráttuna í öðrum. Þannig horfir það að minnsta kosti við mér. Ef allir sinna sínu þá fylgir liðið í kjölfarið.“

Snorri Steinn segir enn fremur að það gefist ekki tími til að leita skýringa enda svo stutt á milli leikja. „Ég hef hugsað um orsakir þess hversu illa við spiluðum gegn Tékklandi en engar skýringar fundið. Ég á því miður engin góð svör fyrir þig og er jafn hissa og allir aðrir. Ef það væri vika í næsta leik þá væri hægt að velta þessu fyrir sér fram og til baka en það er ekki tími til þess.“

Aron Pálmarsson verður ekki með í dag eftir höfuðhögg sem hann fékk gegn Tékklandi í fyrradag. „Auðvitað vill maður hafa hann með en svona er bara staðan. Maður verður því að ýta því til hliðar. Arnór [Atlason] og Beggi [Sigurbergur Sveinsson] sjá bara um þetta og ég hef fulla trú á að þeir geri það vel,“ segir Snorri Steinn.



Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×