Handbolti

Snorri markahæstur í stóru tapi gegn besta vininum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Snorri Steinn var markahæstur að vanda hjá Sélestad.
Snorri Steinn var markahæstur að vanda hjá Sélestad. mynd/svhrb.fr
Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í liði Sélestad eins og svo oft áður í frönsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Hann skoraði sjö mörk úr þrettán skotum, þar af tvö úr vítum, í 29-43 tapi gegn stórliði Paris Saint-Germain á heimavelli í kvöld.

Besti vinur hans í landsliðinu, Róbert Gunnarsson, skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir PSG sem hirti annað sætið aftur af Arnóri Atlasyni og félögum í Saint-Raphaël í kvöld.

Parísarliðið er með 20 stig, tveimur stigum minna en topplið Montpellier. Sélestad er með sex stig í næst neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×